Sveinn Aron Guðjohnsen reyndist í dag hetja Spezia þegar liðið kom til baka gegn Pescara í ítölsku Seríu B.
Sveinn Aron kom inn á völlinn í stöðunni 1-0 fyrir Pescara þegar hálftími lifði leiks. Sveinn Aron lagði upp jöfnunarmarkið átta mínútum seinna og tveimur mínútum eftir það skoraði hann sigurmarkið með skalla.
Sigurinn var fyrsti sigur Spezia í deildinni og var Sveinn Aron ánægður að ná fyrsta sigrinum í hús.

„Ég er mjög ánægður með sigurinn í dag. Fram að leiknum í dag höfum við ekki getað náð í þrjá punkta þrátt fyrir góðar frammistöður. Þjálfarinn kallaði á mig og sagði mér að hjálpa liðsfélögunum," sagði Sveinn Aron við Gazzetta della Spezia eftir leikinn í dag.
„Mér líður vel, leikirnir með U21 árs liðinu hjálpuðu mér að ná uppi takti. Tilfinningin er frábær og ég er mjög sáttur með þennan fallega dag í dag."
„Nú þurfum við að nýta jákvæðu orkuna sem sigurinn færir okkur og reyna að fá þrjú stig á heimavelli í næstu viku. Við eigum enn eftir að sigra á heimavelli," sagði Sveinn Aron að lokum. Mark Sveins Arons í dag má sjá hér að neðan.
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) October 19, 2019
Athugasemdir