Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 23. október 2019 22:13
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu gullfallegt mark Chamberlain í Belgíu
Mynd: Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain skoraði tvennu og var maður leiksins er Liverpool lagði Genk að velli í Meistaradeildinni fyrr í kvöld.

Fyrra markið skoraði miðjumaðurinn í upphafi leiks og tvöfaldaði hann forystuna með mögnuðu marki snemma í síðari hálfleik.

Chamberlain fékk lága sendingu við vítateigsboga andstæðinganna og náði glæsilegu utanfótar skoti sem fór í slánna og inn.

Eins og sést í myndbandinu kom markvörður heimamanna kom engum vörnum við.
Athugasemdir
banner
banner
banner