Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 09. nóvember 2019 15:25
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Chelsea og Crystal Palace: Pulisic bestur
Mynd: Getty Images
Chelsea lagði Crystal Palace að velli á nokkuð sannfærandi hátt í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Tammy Abraham og Christian Pulisic gerðu mörk Chelsea í síðari hálfleik eftir markalausan fyrri hluta og var Pulisic valinn besti maður vallarins af Sky Sports.

Pulisic fær 8 í einkunn fyrir sinn þátt í leiknum og er eini leikmaðurinn á vellinum ásamt Willian sem fær svo háa einkunn.

Abraham fær 7 fyrir sinn þátt, líkt og restin af Chelsea liðinu að undanskildum Kepa Arrizabalaga sem hafði ekkert að gera.

Allir leikmenn Crystal Palace fengu 6 í einkunn nema Jeffrey Schlupp sem kom inn af bekknum og fékk 5.

Chelsea: Kepa (6), James (7), Tomori (7), Zouma (7), Emerson (7), Kante (7), Kovacic (7), Mount (7), Willian (8), Pulisic (8), Abraham (7).
Varamenn: Batshuayi (6)

Crystal Palace: Guaita (6), Ward (6), Tomkins (6), Cahill (6), Van Aanholt (6), McArthur (6), Kouyate (6), Milivojevic (6), Townsend (6), Zaha (6), Ayew (6).
Varamenn: Kelly (6), Schlupp (5)
Athugasemdir
banner
banner
banner