Viðar Örn Kjartansson framherji íslenska landsliðsins verður ekki með liðinu í leiknum gegn Tyrkjum í undankeppni EM 2020 annað kvöld en hann hefur glímt við veikindi.
Íslenska liðið kom saman til æfinga í Antalya á mánudag en Viðar hefur ekkert geta æft vegna flensu.
Erik Hamren landsliðsþjálfari sagði á fréttamannafundi rétt í þessu að Viðar hafi orðið eftir í Antalya þegar liðið flaug til Istanbul í dag.
„Viðar kom á sunnudag með hita og veikindi og hefur ekki geta æft. Hann er enn í Antalya og verður ekki með á morgun. Vonandi verður hann í lagi í leiknum gegn Moldóvu á sunnudaginn," sagði Hamren.
Athugasemdir