Eric Abidal, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, ræddi allt milli himins og jarðar í einkaviðtali við Mundo Deportivo á dögunum, en talaði meðal annars um brasilíska sóknarmanninn Neymar.
Neymar yfirgaf Barcelona fyrir Paris Saint-Germain árið 2017 fyrir metfé.
Barcelona reyndi að kaupa Neymar frá franska félaginu í sumar og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þá gengu viðræðurnar ekki upp.
Abidal viðurkennir að Neymar heillar enn og að það sé alltaf þörf á leikmönnum sem skilja hugmyndafræði Börsunga.
„Toppleikmaður sem þekkir hugmyndafræði Barcelona og er að spila á svona háu stigi verður alltaf möguleiki fyrir okkur," sagði Abidal.
„Sjáum hvað framtíðin ber í skauti sér. Tímabilið er mjög langt en ég ætla ekki að segja að hann er efstur á blaði en en hann er mjög augljós möguleiki fyrir okkur," sagði hann í lokin.
Athugasemdir