mán 18. nóvember 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður Lautaro Martinez arftaki Suarez?
Lautaro Martinez.
Lautaro Martinez.
Mynd: Getty Images
Barcelona veit alveg af tilvist Lautaro Martinez, sóknarmanni Inter á Ítalíu, að sögn Eric Abidal, yfirmanns íþróttamála hjá Börsungum.

Luis Suarez á 18 mánuði eftir af samningi sínum hjá Barcelona og er hann orðinn 32 ára gamall. Barcelona gæti því verið að hugsa um að bæta við sig sóknarmönnum.

Martinez er 22 ára gamall Argentínumaður sem hefur farið vel af stað á tímabilinu með Inter. Hann hefur skorað fimm mörk í 12 deildarleikjum, og auk þess skorað þrjú mörk í fjórum Meistaradeildarleikjum.

„Hann er leikmaður með allan pakkann, hann hefur verið að standa sig mjög vel," sagði Abidal við Mundo Deportivo.

„Hann er leikmaður sem við vitum af, en það eru líka margir aðrir leikmenn með mikil gæði."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner