Patrick Kluivert, fyrrum framherji Barcelona og hollenska landsliðsins, telur að landi sinn Matthijs de Ligt sjái eftir því að hafa farið til Juventus í sumar en ekki Barcelona.
De Ligt fór til Juventus á 67,8 milljónir punda í sumar en Kluivert telur að hann hafi tekið rangt skref þar.
De Ligt fór til Juventus á 67,8 milljónir punda í sumar en Kluivert telur að hann hafi tekið rangt skref þar.
„Ég reyndi persónulega ekki að sannfæra hann um að fara til Barcelona. Ég sagði honum bara hvað væri jákvætt við Barcelona sem félag og talaði um borgina," sagði Kluivert.
„Við erum auðvitað að tala um frábæran varnarmann og hann þarf að velja á endanum. Ég held að hann sjái smá eftir þessu núna en það er eins og það er."
„Þú verður að taka ákvarðanir í lífinu og stundum eru þær góðar og stundum slæmar. Þú verður að læra af ákvörðunum þínum."
Athugasemdir