Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. nóvember 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Frost í Færeyjum - Norður-Makedónía kom í fýluferð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
U21 landsleik Færeyja og Norður-Makedóníu hefur verið frestað vegna kulda.

Mikið frost hefur verið í Færeyjum undanfarna daga og gervigrasið á Þórsvelli er frosið.

Dómarar leiksins skoðuðu aðstæður í hádeginu í dag og gáfu síðan út að ekki yrði hægt að spila leikinn í dag.

Norður-Makedónar halda heim á leið í fyrramálið og nú er ljóst að þeir þurfa að koma aftur síðar til Færeyja að spila leikinn.

Ekki er búið að ákveða hver nýr leikdagur verður.
Athugasemdir
banner
banner