Hinn 71 árs gamli Colin Weir hefur keypt meirihluta í skoska félaginu Patrick Thistle
Weir vann 161 milljón punda í Evrópulottói ásamt eiginkonu sinni Christine árið 2011.
Weir hefur verið stuðningsmaður Patrick Thistle alla tíð en félagið er í B-deildinni í Skotlandi.
Weir vann 161 milljón punda í Evrópulottói ásamt eiginkonu sinni Christine árið 2011.
Weir hefur verið stuðningsmaður Patrick Thistle alla tíð en félagið er í B-deildinni í Skotlandi.
Hann hefur nú keypt meirihlutann í félaginu en hann ætlar hins vegar ekki að halda hlutanum sjálfur.
Weir ætlar þess í stað að gefa stuðninsmönnum Patrick Thistle sinn hluta í félaginu og það verða því stuðningsmennirnir sem eiga meirihluta í félaginu í framtíðinni.
Athugasemdir