Möugleiki er á því að Ederson, markvörður Manchester City, spili í stórleik helgarinnar gegn Chelsea.
Ederson fór meiddur af velli í hálfleik gegn Atalanta í Meistaradeildinni og missti af leiknum þar á eftir gegn Liverpool, sem City tapaði 3-1.
Claudio Bravo var í markinu gegn Liverpool.
Hinn 26 ára gamli Ederson sneri aftur til æfinga með liðinu í dag og hann er inn í myndinni fyrir leikinn gegn Chelsea á laugardaginn.
City þarf á sigri að halda um helgina enda eru Englandsmeistararnir níu stigum frá toppliði Liverpool fyrir leikinn gegn Chelsea.
Athugasemdir