Klukkan 11:00 á eftir kemur í ljós hvaða liði Ísland mætir í umspilinu fyrir lokakeppni EM 2020.
Fylgstu með í beinni Twitter-lýsingu hér á Fótbolta.net.
Fylgstu með í beinni Twitter-lýsingu hér á Fótbolta.net.
Með Íslandi í umspili A verða þrjár þjóðir af þessum fjórum: Búlgaría, Ísrael, Ungverjaland og Rúmenía. Á föstudag verður dregið um það hver af þeim fer í umspil C.
Ísland mætir þeirri þjóð sem er neðst í styrkleikaröðuninni, en tvær neðstu eru Ungverjaland og Rúmenía. Það þýðir að mótherjinn verður annað hvort Ungverjaland eða Rúmenía.
Ísland spilar í undanúrslitum á Laugardalsvelli 26. mars, ef hægt er að spila á Laugardalsvelli, en dregið verður um það hvar úrslitaleikurinn verður spilaður.
Tweets by Fotboltinet
Tweet #fotboltinet
Athugasemdir