Eden Hazard hefur viðurkennt að hann hafi verið alltof þungur þegar hann sneri aftur til æfinga hjá Real Madrid í sumar eftir sumarfrí.
Real Madrid keypti Hazard frá Chelesa í sumar en Belginn var gagnrýndur fyrir að mæta of þungur til æfinga.
Real Madrid keypti Hazard frá Chelesa í sumar en Belginn var gagnrýndur fyrir að mæta of þungur til æfinga.
„Þetta er satt. Ég ætla ekki að leyna því. En þegar ég er í fríi þá er ég í fríi," sagði Hazard.
„Ég bætti á mig fimm kílóum. Ég er fljótur að bæta á mig en fljótur að missa kíló líka svo ég passa mig."
Hazard segist hafa verið 80 kíló þegar hann mætti til æfinga en hann hafi á tíu dögum náð að missa nokkur kíló.
Athugasemdir