Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar gerðu jafntefli gegn Qatar SC í bikarkeppninni í Katar í dag.
Qatar SC komst yfir snemma í seinni hálfleiknum, en Al Arabi jafnaði á 83. mínútu þegar Abdullah Marafee skoraði.
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Al Arabi.
Í bikarkeppninni í Katar er leikið í tveimur riðlum og komast fjögur efstu liðin í báðum riðlunum í 8-liða úrslit. Al Arabi er í þriðja sæti í sínum riðli með fimm stig eftir þrjá leiki.
Á síðustu leiktíð endaði Al Arabi aðeins með eitt stig á botni síns riðils og fór því ekki áfram í 8-liða úrslit.
Athugasemdir