banner
   þri 03. desember 2019 19:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Burnley og Man City: Mendy og Stones á bekkinn
Jóhann Berg Guðmundsson er enn frá vegna meiðsla og verður ekki með Burnley gegn Manchester City í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:15. Reiknað er með að landsliðsmaðurinn geti snúið aftur á keppnisvöllinn um miðjan desembermánuð.

Viðureign Burnley og Man City er áhugaverð þar sem Englandsmeistararnir hafa verið að tapa nokkuð mikið af stigum og sitja í þriðja sæti ensku deildarinnar sem stendur, ellefu stigum eftir toppliði Liverpool.

Burnley er um miðja deild með 18 stig, ellefu stigum á eftir Man City.

City verður án sterkra leikmanna eins og Sergio Agüero, Aymeric Laporte, Ilkay Gundogan og Leroy Sane í kvöld.

Ríkjandi Englandsmeistarar Man City gerðu jafntefli gegn Newcastle um síðustu helgi. Frá þeim leik gerir Pep Guardiola fjórar breytingar. John Stones og Bernard Mendy fara á bekkinn fyrir Otamendi og Angelino. Þá koma Rodri og Bernardo Silva einnig inn í byrjunarliðið fyrir leik kvöldsins.

Burnley tapaði 2-0 gegn Crystal Palace á heimavelli um síðustu helgi. Erik Pieters, Danny Drinkwater og Aaron Lennon koma inn í byrjunarliðið frá þeim leik. Drinkwater, sem er í láni frá Chelsea, er að spila sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Byrjunarlið Burnley: Pope, Pieters, Bardsley, Tarkowski, Mee, Cork, Drinkwater, McNeil, Lennon, Hendrick, Wood.
(Varamenn: Hart, Lowton, Barnes, Brady, Gibson, Rodriguez, Vydra)

Byrjunarlið Man City: Ederson, Walker, Angelino, Otamendi, Fernandinho, Rodri, Silva, Bernardo, De Bruyne, Sterling, Jesus.
(Varamenn: Bravo, Stones, Mendy, Mahrez, Cancelo, Foden, Garcia)

Leikir kvöldsins:
19:30 Crystal Palace - Bournemouth (Síminn Sport 2)
20:15 Burnley - Manchester City (Síminn Sport)

Sjá einnig:
Byrjunarlið Crystal Palace og Bournemouth: Wilson kemur inn
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 8 7 0 1 20 9 +11 21
2 Arsenal 8 7 0 1 13 5 +8 21
3 Brighton 8 5 1 2 23 7 +16 16
4 Liverpool 8 4 3 1 11 8 +3 15
5 Chelsea 8 4 1 3 17 15 +2 13
6 Brentford 8 2 5 1 14 9 +5 11
7 Leeds 8 2 5 1 9 6 +3 11
8 Newcastle 8 3 2 3 12 14 -2 11
9 Aston Villa 8 3 2 3 9 12 -3 11
10 Hull City 8 2 4 2 9 8 +1 10
11 Everton 8 2 4 2 8 9 -1 10
12 Ipswich Town 8 3 1 4 12 16 -4 10
13 Bournemouth 8 2 3 3 12 13 -1 9
14 Tottenham 8 2 3 3 8 10 -2 9
15 Fulham 8 2 2 4 8 10 -2 8
16 Man Utd 8 1 4 3 10 13 -3 7
17 Crystal Palace 8 2 1 5 9 19 -10 7
18 Nott. Forest 8 1 3 4 6 10 -4 6
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Coventry 8 2 0 6 6 15 -9 6
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Sunderland 8 1 2 5 6 14 -8 5
Slapp
banner