mið 04. desember 2019 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
England: Mourinho tapaði á Trafford
Manchester United hafði betur gegn Tottenham í stórleik sem var að ljúka rétt í þessu. Jose Mourinho mætti þar á Old Trafford ári eftir brottrekstur sinn frá Rauðu djöflunum.

Heimamenn byrjuðu vel og skoraði Marcus Rashford eftir sex mínútur. Hann átti fast skot í nærhornið úr erfiðu færi og hægt að setja spurningarmerki við Paulo Gazzaniga á milli stanga gestanna.

Dele Alli jafnaði með glæsilegu marki fyrir leikhlé þar sem hann lék skemmtilega á varnarmenn Man Utd með frábærri snertingu áður en hann skoraði.

Rashford skoraði svo snemma í síðari hálfleik með marki úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot Moussa Sissoko innan vítateigs.

Tottenham náði tveimur skotum á rammann eftir leikhlé og stóðu lærisveinar Ole Gunnar Solskjær uppi sem sigurvegarar. Þetta var fyrsta tap Mourinho með Tottenham eftir þrjá sigurleiki í röð.

Man Utd 2 - 1 Tottenham:
1-0 Marcus Rashford ('6)
1-1 Dele Alli ('39)
2-1 Marcus Rashford ('49, víti)

Lærisveinar Frank Lampard hjá Chelsea eru aftur komnir á sigurbraut þökk sé Tammy Abraham og Mason Mount sem afreiddu Aston Villa í kvöld.

Abraham skoraði með skalla í fyrri hálfleik og jafnaði Trezeguet fyrir leikhlé. Mount kom heimamönnum aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks og áttu gestirnir engin svör.

Chelsea verðskuldaði sigurinn og er liðið í fjórða sæti deildarinnar, með 29 stig eftir 15 umferðir.

Chelsea 2 - 1 Aston Villa
1-0 Tammy Abraham ('24)
1-1 Trezeguet ('41)
2-1 Mason Mount ('48)

Leicester er í öðru sæti með 35 stig eftir sigur á botnliði Watford. Jamie Vardy og James Maddison skoruðu mörkin.

Vardy fékk gult spjald fyrir dýfu í fyrri hálfleik en margir eru á því að vítaspyrna hefði átt að vera dæmd. Atvikið var skoðað með myndbandstækni og ekkert aðhafst.

Leicester 2 - 0 Watford
1-0 Jamie Vardy ('55, víti)
2-0 James Maddison ('95)

Wolves sigraði þá West Ham 2-0. Ítalska ungstirnið Patrick Cutrone kom inn undir lok leiks og skoraði tveimur mínútum síðar.

Danny Ings skoraði þá í 2-1 sigri Southampton gegn Norwich. Teemu Pukki gerði eina mark nýliðanna.

Wolves 2 - 0 West Ham
1-0 Leander Dendoncker ('23)
2-0 Patrick Cutrone ('86)

Southampton 2 - 1 Norwich
1-0 Danny Ings ('22)
2-0 Ryan Bertrand ('43)
2-1 Teemu Pukki ('65)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 8 7 0 1 20 9 +11 21
2 Arsenal 8 7 0 1 13 5 +8 21
3 Brighton 8 5 1 2 23 7 +16 16
4 Liverpool 8 4 3 1 11 8 +3 15
5 Chelsea 8 4 1 3 17 15 +2 13
6 Brentford 8 2 5 1 14 9 +5 11
7 Newcastle 8 3 2 3 12 14 -2 11
8 Aston Villa 8 3 2 3 9 12 -3 11
9 Leeds 7 2 4 1 9 6 +3 10
10 Hull City 8 2 4 2 9 8 +1 10
11 Everton 8 2 4 2 8 9 -1 10
12 Ipswich Town 8 3 1 4 12 16 -4 10
13 Bournemouth 8 2 3 3 12 13 -1 9
14 Tottenham 8 2 3 3 8 10 -2 9
15 Fulham 8 2 2 4 8 10 -2 8
16 Man Utd 8 1 4 3 10 13 -3 7
17 Crystal Palace 8 2 1 5 9 19 -10 7
18 Nott. Forest 8 1 3 4 6 10 -4 6
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Coventry 8 2 0 6 6 15 -9 6
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Sunderland 7 1 1 5 6 14 -8 4
Slapp
banner