Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. desember 2019 14:30
Elvar Geir Magnússon
Zlatan beið í fjögur ár með að hefna sín á Materazzi
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic rifjar það upp í nýju viðtali þegar Marco Materazzi fór á sjúkrahús eftri að hafa orðið fyrir taekwondo sparki frá sér í grannaslagnum í Mílanó.

Zlatan fékk gult spjald fyrir sparkið (sem sjá má hér) en leikurinn fór fram í nóvember 2010.

AC Milan vann 1-0 en Zlatan skoraði eina markið úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur eftir brot Materazzi.

Zlatan segir að sparkið hafi verið viljaverk, hann hafi verið að hefna sín fyrir það þegar hann þurfti að fara meiddur af velli í leik Juventus og Inter fjórum árum áður eftir viðskipti við Materazzi.

„Ég sendi hann á sjúkrahús. Dejan Stankovic spurði mig af hverju ég hefði gert þetta. Ég svaraði: 'Ég hef verið að bíða eftir þessari stund í fjögur ár. Það er ástæðan'."

Búist er við því að Zlatan snúi aftur til AC Milan á næstu dögum en hann hefur yfirgefið Los Angeles Galaxy.
Athugasemdir
banner
banner