Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 06. desember 2019 20:35
Magnús Már Einarsson
Zinchenko og Gundogan snúa aftur gegn Man Utd
Oleksandr Zinchenko.
Oleksandr Zinchenko.
Mynd: Getty Images
Oleksandr Zinchenko, leikmaður Manchester City, er klár í slaginn fyrir grannaslaginn gegn Manchester United á morgun.

Zinchenko hefur verið frá keppni síðan í október en hann fór þá í aðgerð á hné.

Zinchenko hefur verið sárt saknað í vinstri bakverðinum og endurkoma hans eru góðar fréttir fyrir City.

Miðjumaðurinn Ilkay Gundogan snýr einnig aftur í lið Manchester City í vikunni eftir að hafa verið í banni gegn Burnley í vikunni.

Sergio Aguero er ennþá frá keppni vegna meiðsla sem og þeir Aymeric Laporte og Leroy Sane sem eru að glíma við erfið meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner