Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 07. desember 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Íslands- og bikarmeistari sendir frá sér plötu
Egill Jónsson í leik með KR á sínum tíma.
Egill Jónsson í leik með KR á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Egill í leik með Víkingi Ólafsvík.
Egill í leik með Víkingi Ólafsvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Egill Jónsson, fyrrverandi leikmaður KR og Víkings Ó. í efstu deild, sendi á dögunum frá sér plötuna Nætur sem annar helmingur tvíeykisins LØV & LJÓN. Hinn helmingur þess er Einar Lövdahl sem skráði bókina Aron – sagan mín, ævisögu landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar sem kom út fyrir síðustu jól.

Platan er komin á Spotify og hana má nálgast hér.

Egill, sem á að baki 119 meistaraflokksleiki með KR, Víkingi Ó. og Selfossi, fagnaði tvennunni með KR 2011 og bikarmeistaratitli 2014. Tveir fyrrum liðsfélagar hans úr KR, þeir Atli Sigurjónsson og Skúli Jón Friðgeirsson, fóru fögrum orðum um plötuna á Twitter í vikunni og er því ekki annað að sjá en að KR-ingar standi saman allir sem einn, eins og segir í laginu ódauðlega.
Í dag leikur Egill með Värtans IF í Stokkhólmi þar sem hann stundar framhaldsnám samhliða tónlistinni. Á nýafstöðnu tímabili bætti hann fleiri verðlaunum í safnið þegar Värtans IF vann Stockholm Cup, deildabikar félaganna í Stokkhólmi, auk þess sem Egill var kjörinn leikmaður ársins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner