„Fullkominn dagur," sagði Jose Mourinho eftir 5-0 sigur Tottenham gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni.
Sjá einnig:
Mourinho á meðan Son var í viðtali: Gefið honum verðlaunin
Sjá einnig:
Mourinho á meðan Son var í viðtali: Gefið honum verðlaunin
„Það voru engin meiðsli, við héldum hreinu, skoruðum mörk, fullkominn fótbolti, það komu ungir strákar inn á. Sean Dyche er alltaf hreinskilinn og hann sagði við mig eftir leikinn að við hefðum verið of sterkir fyrir þá."
„Ég þakka honum fyrir það. Það er erfitt að spila gegn þeim, en við vorum of góðir. Það voru ekki þeir sem voru lélegir."
„Strákarnir munu loksins fá frídag á morgun, eitthvað sem ég hef ekki enn getað gefið þeim."
Son skoraði glæsilegt mark. „Son skoraði stórglæsilegt mark, en Harry Kane gerði líka tvö fyrir utan teig og átti sendinguna að marki Moussa. Með nokkrum betri sendingum og ákvörðunum þá hefðum við getað skorað enn fleiri."
„Ég man þegar ég var hjá Barcelona með Bobby Robson og Ronaldo Nazario skoraði svipað mark og Son í dag. Og það var magnað mark," sagði Mourinho.
Athugasemdir