Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. desember 2019 13:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: West Brom skoraði fimm gegn Swansea
Bilic er á toppnum með sína menn.
Bilic er á toppnum með sína menn.
Mynd: Getty Images
West Brom 5 - 1 Swansea
1-0 Semi Ajayi ('25 )
2-0 Matheus Pereira ('34 )
2-1 Sam Surridge ('39 )
3-1 Hal Robson-Kanu ('44 )
4-1 Matthew Phillips ('70 )
5-1 Kyle Edwards ('74 )

West Brom er komið upp fyrir Leeds á topp ensku Championship-deildarinnar eftir stórsigur á Swansea á heimavelli.

Sem Ajayi skoraði fyrsta markið á 25. mínútu og bætti Matheus Pereira við öðru marki á 34. mínútu. Sam Surridge minnkaði muninn fyrir Swansea fimm mínútum síðar, en fyrir leikhlé hafði Hal Robson-Kanu skorað þriðja mark West Brom.

Matthew Phillips og Kyle Edwards bættu við mörkum í seinni hálfleiknum fyrir heimamenn.

Lokatölur 5-1 fyrir lærisveina Slaven Bilic sem eru núna á toppnum með 45 stig eftir 20 leiki. Eftir góða byrjun á tímabilinu hefur Swansea aðeins misst dampinn og er í 11. sæti með 30 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner