Slúðrið er á sínum stað á þessum snjóríka mánudegi.
Vitor Pereira er líklegastur til að taka við stjórastöðunni hjá Everton. (Daily Mail)
Niko Kovac, fyrrum þjálfari Bayern Munchen, hefur áhuga á að taka við Arsenal. (The Sun)
Marouane Fellaini (32) miðjumaður Shandong Luneng Taishan í Kína gæti verið á leið aftur í enska boltann en Jose Mourinho vill fá hann til Tottenham. (DH Net)
Óvíst er hvort Zlatan Ibrahimovic snúi aftur í Serie A þrátt fyrir að hann hafi verið orðaður við AC Milan, Bologna og Napoli að undanförnu. Þetta segir umboðsmaður hans Mino Raiola. (La Gazzetta dello Sport)
Frederic Massara, stjórnarmaður hjá AC Milan, segir að félagið sé að bíða eftir ákvörðun frá Zlatan. (Mundo Deportivo)
Eigendur PSG eru nálægt því að kaupa hlut í Leeds. Eigendurnir gætu keypt félagið að fullu á 120 milljónir punda ef Leeds fer upp í ensku úrvalsdeildina. (Star)
West Ham hefur rætt við Middlesbrough um að fá markvörðinn Darren Randolph (32) aftur í sínar raðir. (90min)
Inter hefur áhuga á að fá Marcos Alonso (28) frá Chelsea í janúar. (Calciomercato)
Ivan Rakitic (31) segist vera á fullkomnum stað hjá Barcelona. Rakitic var orðaður við Juventus og Inter á dögunum en hann hefur nú unnið sér sæti í byrjunarliði Barcelona á nýjan leik. (Goal)
Arsenal ætlar ekki að enda lánssamning framherjans Eddie Nketiah (20) hjá Leeds þó að hann hafi ekki ennþá byrjað leik í Championship deildinni í vetur. (Sun)
Athugasemdir