Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. desember 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Helgi Mikael og Vilhjálmur Alvar dæma hjá stórliðum í unglingadeildinni
Helgi Mikael Jónasson.
Helgi Mikael Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Helgi Mikael Jónasson verða báðir með flautuna í unglingadeild UEFA í vikunni.

Vilhjálmur Alvar dæmir leik Dortmund og Slavia Prag í Þýskalandi á morgun.

Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Birkir Sigurðarson.

Helgi Mikael Jónasson dæmir leik PSG og Galatasaray í París á miðvikudaginn.

Honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Þórður Arnar Árnason.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner