Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 09. desember 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Bakayoko ruglaðist á númeri - Ætlaði að rjúka út af
Bakayoko er ekki lengur númer 14.
Bakayoko er ekki lengur númer 14.
Mynd: Getty Images
Tiemoue Bakayoko lenti í óvenjulegu atviki í 3-0 sigri Mónakó gegn Amiens í frönsku úrvalsdeildinni um helgina.

Bakayoko sló í gegn með Mónakó á sínum tíma og var í kjölfarið keyptur til Chelsea.

Leikmaðurinn náði sér ekki á strik hjá Chelsea en hann er nú í láni hjá sínu gamla félagi Mónakó.

Bakayoko spilaði alltaf í treyju númer 14 hjá Mónakó á sínum tíma og um helgina þakkaði hann fyrir sig og ætlaði út af þegar númerið 14 kom á skiptispjaldinu.

Bakayoko er hins vegar númer 6 í dag og hann hló þegar hann áttaði sig á mistökum sínum eins og sjá má hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner