Axel Witsel mun ekki leika meira með Dortmund á þessu ári, belgíski landsliðsmaðurinn slasaði sig heima hjá sér.
Witsel fór á sjúkrahús í gær og í kjölfarið var ákveðið að leikmaðurinn þyrfti á andlitsaðgerð að halda. Witsel datt heima hjá sér sem olli skaða á andliti hans.
Witsel fór á sjúkrahús í gær og í kjölfarið var ákveðið að leikmaðurinn þyrfti á andlitsaðgerð að halda. Witsel datt heima hjá sér sem olli skaða á andliti hans.
Lucien Favre, stjóri Dortmund, hefur staðfest að Witsel verði ekki meira með á þessu ári.
„Við gátum ekki talað við hann í gær þar sem hann var á gjörgæslu. Hann verður ekki meira með á þessu ári en hann fór heim til sín í dag. Vonandi snýr hann til baka sem fyrst," sagði Favre við fjölmiðla í dag.
🤕 @axelwitsel28 hat sich nach einem Sturz eine Gesichtsverletzung zugezogen und fällt für den Rest des Jahres aus. Er wurde im Anschluss an den häuslichen Unfall erfolgreich operiert und konnte das Krankenhaus schon wieder verlassen.
— Borussia Dortmund (@BVB) December 9, 2019
Gute Besserung, Axel! 🙏 pic.twitter.com/unveAlEFjp
Athugasemdir