Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. desember 2019 20:24
Aksentije Milisic
Benitez útilokar ekki endurkomu í enska boltann
Mynd: Getty Images
Rafael Benitez, þjálfari kínverska liðsins Dalian Yifang, segir að hann vilji koma aftur í ensku úrvalsdeildina einn daginn, en ekki á þessum tímapunkti.

Benitez er sérfræðingur hjá Sky Sports í kvöld þar sem farið er yfir umferðina og leik kvöldsins, viðureign West Ham og Arsenal.

Benitez hefur verið orðaður við þó nokkur lið í deildinni, þar á meðal bæði West Ham og Arsenal.

„Í framtíðinni þá vil ég klárlega koma aftur og þjálfa í ensku úrvalsdeildinni. En á þessum tímapunkti er það enginn möguleiki, ef ég á að vera alveg hreinskilinn," sagði Benitez í kvöld.

„Ég er ánægður, mér er treyst þarna, við erum með stóran hóp í liðsstjórninni og erum að vinna að stóru verkefni. Við viljum skilja eftir arfleið, það er áskorun fyrir mig og ég er að læra mjög mikið. Ég er mjög sáttur eins og er."
Athugasemdir
banner