Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 09. desember 2019 21:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Þetta lið gæti fallið - Við erum það lélegir"
Mynd: Getty Images
Piers Morgan, fjölmiðlamaður og stuðningsmaður Arsenal, fer hamförum á Twitter þessa stundina.

Fyrir skömmu tjáði hann sig um að hann vorkenndi Ljungberg og að liðið væri ónothæft.

Í kjölfarið á þeirri færslu skoraði West Ham fyrsta mark leiksins og það kveikti heldur betur í Morgan. Staðan er 1-0 fyrir heimamenn í West Ham í hálfleik.

Hann hefur látið Mesut Özil, leikmann Arsenal, heyra það fyrir leti á vellium og segir þá að Arsenal geti hæglega fallið, liðið sé það lélegt.

„Ég held áfram að segja Arsenal stuðningsmönnum að þetta lið gæti fallið. Þeir hlæja allir en þetta lið gæti fallið. Við erum það lélegir," skrifaði Morgan, færslurnar má sjá hér að neðan.

Uppfært: Xhaka fékk einnig að heyra það fyrir að beygja sig niður í marki West Ham:



Athugasemdir
banner
banner