banner
   mán 09. desember 2019 22:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Özil um Ljungberg: Ungur þjálfari sem er alltaf til staðar fyrir leikmenn
Mynd: Getty Images
„Við sýndum, sérstaklega í seinni hálfleik, hvað við getum gert inn á vellinum ef við trúum á okkur sjálfa," sagði Mesut Özil, miðjumaður Arsenal, við Sky Sports eftir 1-3 sigur Arsenal á West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

„Við áttum skilið að vinna og erum glaðir með sigurinn og sérstaklega fyrir hönd stuðningsmannanna."

Özil var spurður út í fyrstu tvo markaskorara Arsenal, Nicolas Pepe og Gabriel Martinelii.

„Við erum glaðir fyrir þeirra hönd. Við vitum hvaða gæðum þeir búa yfir og þeir sýndu þau í dag."

Að lokum var Özil spurður út í Freddie Ljungberg sem stýrir Arsenal til bráðabirgða.

„Hann var fótboltaleikmaður og hann skilur okkur leikmennina. Hann hefur nú þegar sýnt að hann er gæðaþjálfari og við erum þakklátir að hafa hann. Í dag var góður dagur sem gekk vell upp fyrir hann. Það er alltaf erfitt fyrir félag að skipta up þjálfara. Freddie er ungur þjálfari sem er alltaf til staðar fyrir okkur, sem er það sem við þurfum á að halda, sagði Özil að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner