„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir leikmenn og ég er mjög ánægður fyrir þeirra hönd." sagði Freddie Ljungberg, bráðabirgðastjóri Arsenal, eftir 1-3 útisigur á West Ham í kvöld.
„Þeir hafa spilað undir mjög mikilli pressu undanfarið. Mér fannst leikmenn West Ham þreytast og sendingar okkur urðu betri. Við komumst í gegnum þá og niðurstaðan frábær."
„Strákarnir sýndu hvað í þeim býr í dag og keyrðu yfir andstæðingana þegar þeir urðu þreyttir. Mínir menn unnu fyrir sigrinum og í þessari deild þarf að gera það."

„Þetta er allt leikmönnunum að þakka - Ég er bara þarna til að leiðbeina þeim aðeins," sagði Ljungberg við Sky Sports að lokum.
Athugasemdir