Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 10. desember 2019 18:00
Elvar Geir Magnússon
Hjörvar Sigurgeirs skrifar undir hjá Magna (Staðfest)
Hjörvar Sigurgeirsson.
Hjörvar Sigurgeirsson.
Mynd: Magni
Bakvörðurinn Hjörvar Sigurgeirsson hefur skrifað undir samning við Magna á Grenivík.

Hann spilaði með Magna síðasta tímabil á láni en liðið hafnaði í 9. sæti í Inkasso-deildinni eftir að hafa verið í erfiðri fallbaráttu.

Hjörvar er 21 árs bakvörður og kemur hann frá KA.

Hjörvar lék tíu leiki með KA í Pepsi-deildinni 2018 og svo níu leiki með Magna í Inkasso-deildinni á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner