þri 10. desember 2019 17:32
Ívan Guðjón Baldursson
Pereira kemur ekki lengur til greina sem stjóri Everton
Mynd: Getty Images
Vitor Pereira, þjálfari Shanghai SIPG, var talinn líklegasti arftaki Marco Silva hjá Everton en mun ekki taka við félaginu.

Hann sagði í samtali við Sky Sports fyrir skömmu að hann væri búinn að draga sig úr kapphlaupinu um stöðuna.

Ástæðan er óljós en hefur væntanlega eitthvað að gera með gríðarlega sterka fjárhagsstöðu kínverska félagsins.

Duncan Ferguson er við stjórnvölinn sem bráðabirgðastjóri þessa stundina. Í hans fyrsta leik, sem fór fram um helgina, hafði Everton betur gegn Chelsea og vann verðskuldaðan 3-1 sigur.

Unai Emery, Marcelino og Leonardo Jardim eru meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við stjórastöðuna hjá Everton.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner