Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. desember 2019 16:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Man City: Átta breytingar frá tapinu um helgina
Mynd: Getty Images
Lið Manchester City er mætt til Zagreb í Króatíu þar sem það mætir Dinamo Zagreb í lokaumferð riðlakeppninnar í Meistaradeildinni.

City-liðið er komið áfram en Zagreb er í harðri baráttu við Shakhtar Donetsk og Atalanta um hvaða lið fer með City áfram. Shakhtar tekur á móti Atalanta í hinni viðureigninni og hefjast báðir leikir klukkan 17:55.

Pep Guardiola, stjóri City, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt. Hann gerir átta breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Manchester United um helgina.

Gabriel Jesus, Berardo Silva og Rodrigo eru þeir einu sem halda sæti sínu í byrjunarliðinu.

Byrjunarlið Man City: Bravo, Cancelo, Otamendi (C), E Garcia, Mendy, Rodrigo, Gundogan, Mahrez, Foden, Bernardo, Jesus

(Varamenn: Ederson, Walker, Sterling, Zinchenko, Angelino, De Bruyne, Harwood-Bellis )
Athugasemdir
banner
banner