Alex Iwobi, kantmaður Everton, virðist hafa 'dab-að' þegar N'Golo Kante, leikmaður Chelsea, fór framhjá honum í leik liðanna um síðustu helgi.
Iwobi, sem er ekki þekktur fyrir mikla varnarhæfileika, virðist henda í eitt gott 'dab' þegar hann áttar sig á að Kante fór heldur illa með hann. Paul Pogba, leikmaður Manchester United, gerði dabið frægt á sínum tíma.
Everton vann þennan leik 3-1 með tveimur mörkum frá Dominic Calvert-Lewin og Richarlison. Þetta var þriðji tapleikur Chelsea í síðustu fjórum í deildinni .
Margir á twitter tóku strax eftir þessu skemmtilega athæfi hjá Iwobi og margir höfðum gaman af á meðan sumir voru ekki alveg að skilja þetta hjá Nígeríumanninum. Atvikið má sjá hér að neðan.
Did Alexander Iwobi really just dab after being dribbled past by Kante? pic.twitter.com/beSehbUNcy
— Nebula Football (@NebulaFootballx) December 9, 2019
Athugasemdir