Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. desember 2019 23:30
Aksentije Milisic
Mynd: Neuer einn á miðjunni þegar Bayern tók horn
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen lagði Tottenham Hotspurs að velli í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bæði lið voru komin áfram fyrir leik kvöldsins og því var ekkert undir.

Skemmtileg mynd náðist af Manuel Neuer, markverði Bayern Munchen. Þegar leikmenn Bayern voru að framkvæma hornspyrnu var Neuer kominn alla leið á miðju vallarins og stóð þar.

Neuer hefur oftar en ekki á ferli sínum hlaupið lengst frá marki sínu og hreinsað upp eftir varnarmenn sína en einnig hefur hann nokkrum sinnum lent í klandri og gefið mörk á þennan hátt.

Bayern Munchen fær Werder Bremen í heimsókn á laugardaginn kemur.


Athugasemdir
banner
banner