Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 12. desember 2019 12:27
Elvar Geir Magnússon
Mandzukic ekki boðið á jólaball Juventus
Leonardo Bonucci mætti á jólaballið og skemmti sér vel.
Leonardo Bonucci mætti á jólaballið og skemmti sér vel.
Mynd: Getty Images
Króatíska sóknarmanninum Mario Mandzukic var ekki boðið á jólaskemmtun Juventus.

Þessi 33 ára sóknarmaður hefur ekki spilað mínútu fyrir Maurizio Sarri á þessu tímabili og er ekki í náðinni hjá Ítalíumeisturunum. Hann æfir einn, ekki með hópnum, og vonast til að komast frá Tórínó í janúarglugganum.

Borussia Dortmund hefur áhuga á að fá Mandzukic en tilboð þýska félagsins er talsvert frá verðmiða Juventus. Þá eru launatölur hans einnig hindrun.

Allur leikmannahópur Juventus mætti á jólaskemmtun félagsins sem haldin var af stjórnarformanninum Andrea Agnelli, fyrir utan Mandzukic.

Mandzukic var orðaður við Manchester United en sagt er að enska félagið horfi nú í aðrar áttir. Samningur leikmannsins rennur út 2021.
Athugasemdir
banner
banner