Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. desember 2019 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ben Foster hjálpaði öldruðum manni í vandræðum - Bauð honum í heimsókn um jólin
Mynd: Getty Images
Ben Foster, markvörður Watford, gerði mikið góðverk um síðustu helgi. Eftir heimaleik Crystal Palace var Foster á leið heim ásamt eiginkonu og föður sínum.

Þau tóku eftir að gamall maður var í vandræðum og komu að honum ofan í skurði sem hann hafði dottið ofan í. Gamli maðurinn, sem er áttræður og með vitglöp, var á heimleið frá Vicarage Road á laugardag. Bíllinn hans hafði orðið rafmagnslaus og ætlaði hann að labba um sextán kílómetra heim til sín.

Foster hjálpaði honum úr skurðinum og sagðist hafa séð úr fjarlægð að eitthvað var ekki í lagi hjá manninum.

Foster tók manninn með sér heim og í kjölfarið var honum boðið í jólaboð ef hann yrði einn um jólin. Þá bauðst Foster einnig til að græja nýjan ársmiða fyrir manninn ef hann gæti enn mætt á leiki á næstu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner