Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 16. desember 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Klopp: Simeone er ekki hlaupandi um í stofunni
Mynd: Getty Images
„Þetta er áhugaverður dráttur. Áður en var dregið þá bjóst ég við að við myndum fara til Madrid og mæta öðru hvoru félaginu, og þetta fór þannig," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir að ljóst var að liðið mætir Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þetta er erfiður leikur en ef þú skoðar allan dráttinn þá gætu fjórir eða fimm af leikjunum í 16-liða úrslitunum allt eins verið úrslitaleikir."

„Þetta er mjög góður dráttur, erfiður leikur eins og þetta á að vera. Ég held að herra (Diego) Simeone (þjálfari Atletico Madrid) sé ekki að hlaupa um í stofunni af ánægju yfir að mæta Liverpool."

„Þetta verður erfiður leikur. Tvö lið sem eru vön því að spila fótbolta af mikilli ákefð. Þetta eru mismunandi leikstílar og aðeins mismunandi skiplag en bæði lið eru klár í ákfeðina og það gerir þetta erfitt fyrir bæði lið."

Athugasemdir
banner
banner
banner