Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 05. maí 2006 08:02
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 10. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Breiðablik 10. sæti í Landsbankadeild karla 2006.  Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig.  Breiðablik fékk 24 stig út úr þessu.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.


Hvað segir Ólafur?
Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum.  Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku.  Hér að neðan má sjá hans álit á Breiðablik.

Um Breiðablik
Þetta er lið sem er að koma uppúr fyrstu deild. Ég hef séð þá spila bæði í fyrra og núna. Það sem mér finnst vera einkennandi fyrir Breiðablik er að það er ágætis kraftur í þeim. Þeir eru með leikmenn sem sækja mjög hratt og eru skeinuhættir þannig. Þeir spila mjög beinskeittan fótbolta og  eru náttúrulega búnir að vera með sama þjálfarann í nokkur ár svo það er komin ákveðin festa í liðið. Auk þess eru þeir með fínan markmann.

Styrkleikar:
Styrkleikarnir eru að þeim gekk vel í fyrra og þeir eru með ágætlega samanspilað lið. Þeir hafa misst Hans Fróða sem spilaði frábært tímabil í fyrra en það leysist. Þeir eru með tvo efnilega stráka í hafsentunum sem gætu átt fínt tímabil, en reynsluleysi gæti líka komið þeim um koll. Guðmann og Kári eru ungir en efnilegir báðir. Liðið er samanspilað og búið að vera lengi saman.

Veikleikar
Veikleikarnir eru að þetta er tiltölulega ungt lið og reynslan í efstu deild er ekkert rosalega mikil.

Gaman að fylgjast með
Þeir fengu Marel Baldvinsson frá Lokeren og hann er mjög góður leikmaður. En hvort hann nær að spila allt tímabilið út af meiðslunum er ekki gott að segja. Ef hann er í standi þá er hann einn besti framherjinn hérna heima en ef hann lendir í meiðslum þá gæti Breiðablik lent í vandræðum með að skora. Stiig Haaland er alveg prýðilegur bakvörður sem styrkir þá  Þetta er mjög jafnt lið og ég myndi halda að það verði gaman að sjá Marel hérna heima aftur. Svo er ég svolítið spenntur að sjá hafsentana tvo spila saman.

Lykilmaður
Lykilmaður í Breiðablik er bara liðsheildin. Það er erfitt að týna út úr þessum hóp en ef Marel verður heill þá verður hann lykilmaður.



Þjálfarinn:
Það er Bjarni Jóhannsson sem þjálfar Breiðablik en hann tók við liðinu í október 2003.  Eftir tvö ár í fyrstu deildinni kom hann Blikunum aftur upp í efstu deild með því að rúlla yfir 1. deild á síðustu leiktíð.  Bjarni sem er íþróttakennari í Borgarholtsskóla á enn fleiri störf því hann er líka aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins og hefur aðstoðað við íþróttalýsingar á Sýn.  Hann hefur einnig þjálfað ÍBV, Fylki og Grindavík.  Bjarni hefur tvisvar verið Íslandsmeistari með ÍBV og tvisvar bikarmeistari, með ÍBV og Fylki.

Líklegt byrjunarlið Breiðabliks:



Völlurinn:
Kópavogsvöllur er staðsettur á glæsilegu íþróttasvæði í Kópavoginum þar sem fjöldi grasvalla er í kring og knattspyrnuhús.  Í stúkunni sem er ekki yfirbyggð eru sæti fyrir 369 áhorfendur en gegnt stúkunni eru stæði sem taka 2132 áhorfendur. Auk þess er nægt svæði í kringum völlinn, meðal annars í grasbrekku, og samtals getur Kópavogsvöllur tekið við 5500 áhorfendum.

Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna Breiðabliks eru Gilzenegger, Dr. Gunni, Þórólfur Árnason, Hjálmar Hjálmarsson (grínisti), Kristján Hreinsson skáld.

Spáin

nr. Lið Stig
1 FH 97
2 ÍA 83
3 KR 74
4 Valur 73
5 Keflavík 65
6 Fylkir 46
7 Víkingur 33
8 ÍBV 30
9 Grindavík 25
10 Breiðablik 24

Um félagið

Breiðablik
Stofnað 1950

Titlar:

Aðalbúningur:
Peysa: Græn og hvít / Buxur: Hvítar / Sokkar: Hvítir

Varabúningur:
Peysa: Hvít / Buxur: Hvítar / Sokkar: Rauðir

Opinber vefsíða:
Breiðablik.is

Komnir og farnir

Nýjir frá síðasta sumri:
Marel Baldvinsson frá Lokeren
Birgir Vagn Ómarsson frá Völsungi
Stig Krohn Haaland frá Noregi
Pétur Már Pétursson frá KR
Farnir frá síðasta sumri:
Errol Edderson Mc Farlane farinn erlendis
Hans Fróði Hansen til Færeyja
Þór Steinar Ólafs í Víking Ólafsvík
Sigurður Heiðar Höskuldsson í ÍR (á láni)
Sigmar Ingi Sigurðarson í ÍH
Hjalti Kristjánssson hættur
Komnir til baka úr láni:
Eyþór Páll Ásgeirsson frá Víkingi Ólafsvík
 

Leikmenn Breiðabliks

nr. Nafn Staða
1. Hjörvar Hafliðason Markvörður
2. Árni Kristinn Gunnarsson Varnarmaður
4. Arnór Sveinn Aðalsteinss Varnarmaður
5. Guðmann Þórisson    Varnarmaður
6. Kári Ársælsson    Varnarmaður
7. Kristján Óli Sigurðsson   Miðjumaður
8. Ragnar Heimir Gunnarss Miðjumaður
9. Viktor Unnar Illugason   Framherji
10. Magnús Páll Gunnarsson Miðjumaður
11. Olgeir Sigurgeirsson    Miðjumaður
13. Steinþór Freyr Þorsteinss Miðjumaður
17. Petr Podzemsky   Miðjumaður
18. Marel Baldvinsson  Framherji
19. Þorsteinn V Einarsson   Markvörður
20. Birgir Hrafn Birgisson Miðjumaður
22. Ellert Hreinsson Framherji
23. Gunnar Örn Jónsson   Framherji
Stig Krohn Haaland Varnarmaður
Birkir Vagn Ómarsson Framherji
Guðmundur Kristjánsson Miðjumaður
Hlynur Hauksson Varnarmaður
Pétur Magnús Birgisson Varnarmaður
Árni Már Heimisson Varnarmaður
 

Leikir Breiðabliks

Dags: Tími Leikur
15. maí 20:00 Breiðablik - Valur
20. maí 14:00 Breiðablik - ÍBV
25. maí 16:00 Víkingur - Breiðablik
29. maí 19:15 Breiðablik - Grindavík
6. júní 19:15 KR - Breiðablik
11. júní 19:15 Breiðablik - FH
15. júní 19:15 ÍA - Breiðablik
22. júní 19:15 Breiðablik - Fylkir
29. júní 19:15 Keflavík - Breiðablik
9. júlí 14:00 Valur - Breiðablik
18. júlí 19:15 ÍBV - Breiðablik
27. júlí 19:15 Breiðablik - Víkingur
10. ágúst 19:15 Grindavík - Breiðablik
21. ágúst 18:00 Breiðablik - KR
27. ágúst 18:00 FH - Breiðablik
10. sept 14:00 Breiðablik - ÍA
17. sept 14:00 Fylkir - Breiðablik
23. sept 14:00 Breiðablik - Keflavík

Slapp
banner
banner