Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í tíunda sætinu í þessari spá voru Haukar sem fengu 27 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Haukaliðið.
Haukar
Þjálfari: Gústaf Adolf Björnsson.
Búningar: Rauð treyja, rauðar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.haukar.is
Haukar hafa algjörlega fallið í skuggann af FH í Hafnarfirðinum og frekar komist í fréttirnar á undanförnum árum fyrir árangur í íþróttum sem stundaðar eru innanhúss. Tvö síðustu ár hafa Haukar verið skuggalega nálægt því að falla en nú er hinn mikli keppnismaður Gústaf Adolf Björnsson tekinn við liðinu og ætlar að berja baráttuandann í sína menn. Gríðarlega reynslumikill þjálfari og er líklegur til að ná því allra besta út úr leikmönnum liðsins.
Það eru engar gífurlegar breytingar á Haukaliðinu frá því í fyrra en þó eru hinir bandarísku Geoff Miles og Rodney Perry horfnir á braut en þeir þóttu sprækir með liðinu. Þá er sóknarmaðurinn Þorvaldur Már J. Guðmundsson farinn í ÍR í 2. deildinni en Þorvaldur skoraði fimm mörk fyrir félagið í fyrrasumar. Liðið hefur fengið nokkra leikmenn í staðinn meðal annars Albert Högna Arason sem getur spilað í vörn eða miðju en hann var fyrirliði Aftureldingar.
Miðjumaðurinn Ryan Mouter er snúinn aftur en hann
Það eru margir sem spá því að Haukar verði í basli í sumar eins og undanfarin tvö ár en ljóst að það þarf ansi mikið að ganga upp ef liðið ætlar að geta andað rólega fyrir lokaumferðirnar. Þegar litið er á pappírinn virðist liðið ekki nægilega sterkt en eins og allir vita þá fást engin stig fyrir pappírinn.
Styrkleikar: Haukaliðið hefur nokkra efnilega og spræka stráka sem eru reiðubúnir að fórna sér fyrir málstaðinn og undir stjórn Gústafs gætu þeir sprungið út og sýnt sínar bestu hliðar. Með ágætis miðju.
Veikleikar: Breiddin er of lítil og þá veitir liðinu ekki af því að styrkja sig í ákveðnum stöðum á vellinum. Vantar fleiri reynda leikmenn til að draga vagninn, reynsluleysi gæti háð liðinu. Haukar fengu aðeins fimm stig á útivöllum í fyrra og ef það nær ekki að snúa því við í sumar er ekki von á góðu.
Lykilmenn: Kristján Ómar Björnsson, Albert Högni Arason og Ryan Mouter.
Komnir: Albert Högni Arason frá Aftureldingu, Jónmundur Grétarsson úr Stjörnunni og Ryan Mouter frá Englandi.
Farnir:
Þorvaldur Már Guðmundsson í ÍR, Geoff Miles í Keflavík, Rodney Perry, Betim Haxhiajdini til Þýskalands, Birgir Rafn Birgisson í ÍH.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Haukar 27 stig


