Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 06. maí 2006 08:02
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 9. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Grindavík 9. sæti í Landsbankadeild karla 2006.  Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig.  Grindavík fékk 25 stig út úr þessu.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.


Hvað segir Ólafur?
Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum.  Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku.  Hér að neðan má sjá hans álit á Grindavík.

Um Grindavík
Grindavík spilar ekkert mjög flókinn fótbolta og í fyrra spiluðu þeir oft á tíðum mjög skemmtilegan fótbolta. Þeir vildu reyna að spila og halda boltanum og það gekk oft ágætlega. Þeir eru á hverju ári óskrifað blað því það eru alltaf miklar sviptingar í leikmannamálum. Grindavík, ÍBV, Keflavík og ÍA fara oft langt á því að heimamennirnir hjá liðinu, hvort sem þeir er heimamenn eða búnir að spila í einhvern tíma, skapa alltaf ákveðið samfélag í kringum þetta sem skapar ákveðna liðsheild og samfylkingu. Svo virðast útlendingarnir detta prýðilega inn í það og það er mjög öflugt og kemur til að hjálpa þeim mjög mikið.

Styrkleikar:
Styrkleikar Grindvíkinga eru heimavöllurinn. Það er ekki auðvelt að fara í Grindavík að spila. Það er neisti í liðinu. Að vísu fannst mér þeir detta niður í svolítla lognmollu á útivelli, sem er svolítill veikleiki hjá þeim að halda ekki sama heima og að heiman, þeir verða að vinna bug á því. Styrklegiki eru líka menn eins og Sinisa Kekic og Óli Stefán.

Veikleikar
Það er mikið af útlendingum sem eru að koma inn og það inní móti og svo framvegis. Þeir eru ekki búnir að fullmanna sitt lið skilst mér ennþá. Maður veit ekkert hvernig Grindavík verður en Siggi hefur ákveðið concept sem hann vinnur eftir og gerði hjá Víknig. Hann náði ágætis árangri með víking í 1. deildinni í fyrra og var allt í lagi árið sem þeir féllu.

Gaman að fylgjast með
Það er alltaf gaman að fylgjast með Kekic, hann er einn allrabesti leikmaðurinn sem spilar í deildinni þó hann sé hundgamall. Paul McShane er líka einn af lykilmönnunum. Ég myndi segja að þetta væru þeir sem eru kjarninn í liðinu.

Lykilmaður
Óli Stefán er búinn að vera þarna í mörg ár og er sá sem ber kúltúrinn áfram í klúbbnum og sama er með Kekic sem er bæði góður leikmaður og með gullhjarta. Þeir eru lykilleikmenn þarna sem kemur til með að mæða mikið á. Ég veit ekki um Jóhann Þórhalls sem kemur frá KA. Hann hefur miklu meira til að bera en hann hefur sýnt. Hann finnst mér að eigi að vera lykilmaður í þessu liði. Kristján Valdimarsson sem kemur úr Fylki hann mun sjálfsagt spila en er í stöðu þar sem hann hefur engin afgerandi áhrif. 



Þjálfarinn:
Það er Sigurður Jónsson sem er tekinn við þjálfun Grindavíkur.  Sigurður hóf þjálfaraferil sinn hjá FH 2002 og undir hans stjórn vann liðið sinn fyrsta titil á fyrsta ári er þeir urðu Deildabikarmeistarar.  Hann tók svo við Víkingum 2003 og kom þeim beint í Landsbankadeildina úr 1. deild á fyrsta ári.  Þeir féllu svo niður í 1. deild að nýju 2004 og eftir eitt tímabil þar voru þeir komnir í Landsbankadeildina nú 2006.  Sigurður hætti hinsvegar og tók við Grindavík.  Sem leikmaður hóf hann ferilinn hjá ÍA en lék einnig með Sheffield Wednesday, Arsenal og fleiri liðum.

Líklegt byrjunarlið Grindavíkur:

 

Völlurinn:
Völlurinn í Grindavík tekur 2500 manns en glæsileg stúka þeirra tekur 1500 manns.  Stúkan var vígð á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní 2001 og þykir glæsilegt mannvirki.  Stúkan er svo stór að 60% bæjarbúa í Grindavík gætu komist í hana í sæti..

 
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna Grindvíkinga eru Idolstjarnan Kalli Bjarni, Dagbjartur Einarsson útgerðarkóngur.

Spáin

nr. Lið Stig
1 FH 97
2 ÍA 83
3 KR 74
4 Valur 73
5 Keflavík 65
6 Fylkir 46
7 Víkingur 33
8 ÍBV 30
9 Grindavík 25
10 Breiðablik 24

Um félagið

Ungmennafélag Grindavíkur
Stofnað 1935

Titlar:
Deildabikarmeistarar: 2000


Búningar:
Grindavík

Aðalbúningur:

Peysa: Gul / Buxur: Bláar / Sokkar: Bláir

Varabúningur:
Peysa: Blá / Buxur: Bláar / Sokkar: Hvítir

Opinber vefsíða:
UMFG.is

Komnir og farnir

Nýjir frá síðasta sumri:
Orri Freyr Hjaltalín snýr til baka úr meiðslum
Ray Anthony Jónsson snýr til baka úr meiðslum
Jóhann Helgason frá KA
Jóhann Þórhallsson frá KA
Kristján Valdimarsson frá Fylki
Andri Steinn Birgisson frá Víkingi R.
Sigurður Jónsson þjálfari úr Víkingi
Farnir frá síðasta sumri:
Alfreð Elías Jóhannsson í GG
Boban Savic óvíst hvert hann fer
Mathias Jack óvíst hvert hann fer
Michael Zeyer óvíst hvert hann fer
Robert Niestroj í lið í Þýskalandi
Magnús Sverrir Þorsteinsson í Keflavík
Andri Hjörvar Albertsson í Fjarðabyggð
Jóhann Helgi Aðalgeirsson í GG,
Jón Fannar Guðmundsson í GG,
Leifur Guðjónsson í GG,
Viktor Sigurjónsson í GG,
Sveinn Þór Steingrímsson í Njarðvík (á láni)
Komnir til baka úr láni:
Michael J Jónsson frá Njarðvík
 

Leikmenn Grindavíkur

nr. Nafn Staða
1. Helgi Már Helgason Markvörður
2. Kristján Valdimarsson Varnarmaður
3 Ray Anthony Jónsson Varnarmaður
4. Eyþór Atli Einarsson Miðjumaður
6. Óðinn Árnason Varnarmaður
7. Óli Stefán Flóventsson Varnarmaður
8. Ian Paul McShane Miðjumaður
9. Sinisa Kekic Allar stöður
10. Eysteinn Húni Hauksson Miðjumaður
11. Orri Freyr Óskarsson Framherji
12. Hjörtur Pálsson    Markvörður
14. Michael J Jónsson Sóknarmaður
15. Páll Guðmundsson.  Miðjumaður
16. Scott Mckenna Ramsay Miðjumaður
17. Bogi Rafn Einarsson Varnarmaður
18. Jóhann Þórhallsson. Framherji
19. Guðmundur Andri Bjarna Varnarmaður
20. Óskar Örn Hauksson    Miðjumaður
22. Alexander Veigar Þórar.. Miðjumaður
23. Mounir Ahandour Framherji
24. Einar Helgi Helgason Varnarmaður
25. Þorfinnur Gunnlaugsson. Sóknarmaður
26. Emil Daði Símonarson Sóknarmaður
27. Jósef Kristinn Jósefsson Miðjumaður
28. Áslaugur Andri Jóhannss Varnarmaður
29. Vilmundur Þór Jónasson Varnarmaður
30 Ólafur Daði Hermannsson Varnarmaður
31 Magnús Bjarni Pétursson Markvörður
 

Leikir Grindavíkur

Dags: Tími Leikur
14. maí 16:00 Grindavík - ÍA
19. maí 19:15 Fylkir - Grindavík
24. maí 20:00 Grindavík - Keflavík
29. maí 19:15 Breiðablik - Grindavík
5. júní 19:15 Grindavík - ÍBV
8. júní 19:15 Víkingur - Grindavík
15. júní 19:15 Grindavík - Valur
22. júní 19:15 Grindavík - KR
28. júní 19:15 FH - Grindavík
7. júlí 19:15 ÍA - Grindavík
18. júlí 19:15 Grindavík - Fylkir
27. júlí 19:15 Keflavík - grindavík
10. ágúst 19:15 Grindavík - Breiðablik
20. ágúst 18:00 ÍBV - Grindavík
27. ágúst 18:00 Grindavík - Víkingur
11. sept 20:00 Valur - Grindavík
17. sept 14:00 KR - Grindavík
23. sept 14:00 Grindavík - FH

Slapp
banner