Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 07. maí 2006 08:02
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 8. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá ÍBV 8. sæti í Landsbankadeild karla 2006.  Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig.  ÍBV fékk 30 stig út úr þessu.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.


Hvað segir Ólafur?
Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum.  Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku.  Hér að neðan má sjá hans álit á ÍBV.

Um ÍBV
Þjálfarinn fær hrós fyrir að halda liðinu uppi á síðust leiktíð. ÍBV spila bara sinn Eyjabolta, þeir eru kannski ekki með besta mannskapinn en þeir eru alltaf með ágætislið sem reyndar stóð mjög tæpt í fyrra. Þeir spila mjög einfaldan bolta en það skilar stigum.

Þeir voru með mjög ungt lið í fyrra, nema Birki í markinu, og það var frábært fyrir þá að halda sér uppi. Þeir byrjuðu mjög illa sem helgast af því að þeir voru að fá leikmenn til sín á síðustu stundu héðan og þaðan og með leikmenn í bænum sem fara svo út í Eyju. Það er ekki hægt að segja að þeir fái almennt góða byrjun á mótinu en svo vinna þeir á. Í fyrra voru þeir með Birki í markinu sem var mjög öflugur.

Styrkleikar:
Styrkleiki þeirra er heimavöllurinn. Það sem ég vil líka meina að styrki þá er að fá Bo Henriksen sem getur skorað mörk. Hann getur haldið bolta og getur skorað mörk. Hann er alltaf jákvæður og alltaf tilbúinn að vinna. Þeir eru kannski núna komnir með framherja sem á að geta skorað 8-12 mörk í deildinni, meira að segja í þessu liði. Ég held að ef þeir nái að spila öflugan varnarleik og spila einfalt upp á hann þá eigi þeir að geta spjarað sig ágætlega.

Veikleikar
Veikleikinn er samsetningin á liðinu og hópnum. Bæði aldurssamsetning og að þeir eru að fá leikmenn að láni og erlendis frá. En það verður svo styrkleiki að vera á svona litlum stað þar sem menn eru alltaf með nefið í næsta manns koppi og það skapast þessi stemmning. Það sem er hjá flestum liðum veikleiki, menn úr mörgum áttum, verður styrkleiki hjá þeim

Að missa Ian Jeffs er mjög slæmt fyrir þá því hann er mjög öflugur leikmaður og var einn besti miðjumaðurinn í deildinni. Það verður spurning hvernig þeir leysa það.  Það veikir liðið að hafa misst hann. 

Gaman að fylgjast með
Það verður gaman að fylgjast með Bo Henriksen. Bjarni Hólm var að spila þokkalega í fyrra og kom mér á óvart. Atli Jóhannsson á að geta fengið meira út úr sínu heldur en hann gerði í fyrra. Andri Ólafsson er svo mjög efnilegur leikmaður.

Lykilmaður
Bo er lykilmaður í þessu liði. Andrew Mwesingwa er landsliðsfyrirliði Úganda og hann á að vera lykilmaður í þessu liði. Hrafn markvörður kom inn þegar Birkir meiddist í fyrra og spilaði ágætlega. Liðsheildin er annars þeirra sterkasti hlekkur, Eyjaliðsheildin.



Þjálfarinn:
Guðlaugur Baldursson þjálfar ÍBV annað árið í röð.  Þetta er hans annað ár sem þjálfari meistarafloksliðs. Guðlaugur er aðeins 33 ára gamall og hafði áður þjálfað yngri flokka FH auk þess að vera aðstoðarþjálfari FH árið 2001. Guðlaugur náði árið 2003 besta árangri sem þjálfari hefur náð hér á landi er 2. flokkur FH undir hans stjórn vann alla sína leiki á Íslandsmótinu og varð auðvitað Íslandsmeistari.

Líklegt byrjunarlið ÍBV:

 

Völlurinn:
ÍBV leikur heimaleiki sína á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Á vellinum er nýleg stúka sem byggð var fyrir fjórum árum. Völlurinn tekur um 3000 áhorfendur í heildina en stúkan ein og sér tekur 540 í sæti.

 
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna ÍBV eru Þorsteinn Gunnarsson sjónvarpsmaður, Robert Marshall fréttamaður, Árni Johnsen fyrrum þingmaður, Páll Magnússon fréttamaður, Lúðvík Bergvinsson alþingismaður, Guðjón Hjörleifsson alþingismaður, Dario Gradi, framkvæmdastjóri, Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona, Sighvatur Jósson fréttamaður Eiður Arnarsson bassaleikari, Ragnar Sigurjónsson staðarhaldari í Viðey og Ásgeir Sigurvinsson fyrrverandi landsliðsþjálfari.

Spáin

nr. Lið Stig
1 FH 97
2 ÍA 83
3 KR 74
4 Valur 73
5 Keflavík 65
6 Fylkir 46
7 Víkingur 33
8 ÍBV 30
9 Grindavík 25
10 Breiðablik 24

Um félagið

Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Stofnað 1945

Titlar:
Íslandsmeistarar: 1979, 1997, 1998
Bikarmeistarar: 1968, 1972, 1981, 1998
Deildabikarmeistarar: 1997

Búningar:
Hummel

Aðalbúningur:

Peysa: Hvít / Buxur: Hvítar / Sokkar: Hvítir

Varabúningur:
Peysa: Rauð / Buxur: Svartar / Sokkar: Svartir

Opinber vefsíða:
ÍBV.is

Komnir og farnir

Nýjir frá síðasta sumri:
Arilíus Marteinsson frá Selfossi
Bo Henriksen frá Fram
Sævar Eyjólfsson frá Þrótti
Andrew Mwesingwa frá Úganda
Jonah Long frá Bandaríkjunum,
Ingi Rafn Inigibergsson frá Selfossi
Farnir frá síðasta sumri:
Magnús Már Lúðvíksson í Þrótt
Ian Jeffs til Svíþjóðar
Pétur Óskar Sigurðsson til FH, til baka úr láni
Heimir Snær Guðmundsson til FH, til baka úr láni
Andrew Sam óvíst hvert hann fer
Rune Rasmussen Lind til Danmerkur
Birkir Kristinsson hættur
Steingrímur Jóhannsson hættur
James Robinson til Ástralíu
Lewis Dodds til Englands
Jack Wanless til Englands
Andri Eyvinsson í KFS (á láni)
Ástvaldur Helgi Gylfason í KFS (á láni)
Stefán Björn Hauksson í KFS (á láni)
Komnir til baka úr láni:
Sindri Viðarsson frá KFS
Sæþór Jóhannesson frá KFS
 

Leikmenn ÍBV

nr. Nafn Staða
1. Hrafn Davíðsson Markvörður
2. Andrew Mwesigwa Varnarmaður
4 Jonah D Long Varnarmaður
6. Andri Ólafsson Miðjumaður
7. Atli Jóhannsson Miðjumaður
8. Sævar Eyjólfsson Framherji
9. Pétur Runólfsson Varnarmaður
10. Bo Henriksen Framherji
11. Christopher Vorenkamp Varnarmaður
13. Arilíus Marteinsson Framherji
14. Bjarni Geir Viðarsson Miðjumaður
15. Sindri Viðarsson Miðjumaður
16. Bjarni Rúnar Einarsson Sóknarmaður
17. Adolf Sigurjónsson Framherji
18. Anton Bjarnason Framherji
19. Egill Jóhannsson Framherji
20. Bjarni Hólm Aðalsteinss Varnarmaður
21. Páll Þorvaldur Hjarðar Varnarmaður
22. Davíð Egilsson .
23. Ingi Rafn Ingibergsson Framherji
25. Guðjón Magnússon Markvörður
 

Leikir Grindavíkur

Dags: Tími Leikur
14. maí 16:00 ÍBV - Keflavík
20. maí 14:00 Breiðablik - ÍBV
25. maí 19:15 ÍBV - Valur
28. maí 19:15 ÍBV - Víkingur
5. júní 19:15 Grindavík - ÍBV
10. júní 16:00 ÍBV - KR
15. júní 19:15 FH - ÍBV
22. júní 19:15 ÍBV - ÍA
28. júní 19:15 Fylkir - ÍBV
11. júlí 19:15 Keflavík - ÍBV
18. júlí 19:15 ÍBV - Breiðablik
31. júlí 19:15 Valur - ÍBV
10. ágúst 19:15 Víkingur - ÍBV
20. ágúst 18:00 ÍBV - Grindavík
27. ágúst 18:00 KR - ÍBV
10. sept 14:00 ÍBV - FH
17. sept 14:00 ÍA - ÍBV
23. sept 14:00 ÍBV - Fylkir

Slapp
banner