Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 06. maí 2006 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 1.deild karla: 9. sæti
Mynd: Merki
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í níunda sætinu í þessari spá voru Leiknismenn sem fengu 50 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Breiðhyltingana.


Leiknir
Þjálfari: Garðar Gunnar Ásgeirsson
Búningar: Vínrauð/blá treyja, bláar buxur, bláir sokkar.
Heimasíða: http://www.leiknir.com

Leiknisliðið er byggt upp á uppöldum leikmönnum sem hafa mikla reynslu þrátt fyrir að vera ekki mjög gamlir. Breiðhyltingar eru nú komnir upp í 1. deild í annað sinn í sögu félagsins og ef liðinu tekst að bjarga sér frá falli hafa þeir náð besta árangri í sögu félagsins.

Liðið hefur misst báða dönsku leikmennina sem það hafði í fyrra, miðjumanninn Simon Karkov sem fór heim til Danmörku og svo sóknarmanninn Jakob Spangsberg sem er kominn til Vals. Jakob hefur verið iðinn við kolann hjá Leikni síðustu tvö leiktímabil og verið helsti markaskorari liðsins. Erfitt gæti reynst fyrir liðið að fylla hans skarð. Þá er Vigfús Arnar Jósepsson farinn aftur í KR eftir að hafa spilað stórt hlutverk með Leikni síðustu tvö tímabil.

Í staðinn eru komnir tveir sænskir leikmenn sem fróðlegt verður að sjá hvernig standa sig, annar þeirra er framliggjandi en hinn miðjumaður og hefur litið vel út í deildabikarnum.
Þá hefur liðið fengið Björn Sigurbjörnsson frá Aftureldingu. Leiknisliðið getur spilað fantafótbolta enda þekkja leikmennirnir hvorn annan í gegn. Liðsheildin gæti orðið til þess að liðið komi á óvart í sumar. Garðar Gunnar Ásgeirsson stýrir liðinu þriðja tímabilið í röð en þessi ungi þjálfari hefur náð mjög athyglisverðum árangri og stýrði liðinu til sigurs í 2. deildinni í fyrra.

Í miðverðinum má finna einn efnilegasta varnarmann landsins, Halldór Kristinn Halldórsson. Liðið hefur bakverði sem taka virkan þátt í sóknarleiknum og þá getur kantmaðurinn Pétur Örn Svansson sýnt skemmtileg tiþrif. Það er þó ljóst að Leiknismenn þurfa að sýna mikla baráttu ef þeir ætla ekki að lenda í vandræðum í sumar.

Styrkleikar: Leiknir hefur talsverða breidd og sterka miðju. Liðið er byggt upp á uppöldum leikmönnum og hefur sterka liðsheild sem gæti fleytt þeim langt. Strákar sem njóta þess að spila fótbolta. Eru með sterkan heimavöll þar sem þeir fá dyggan stuðning.

Veikleikar: Leiknisliðið á það til að vera ansi sveiflukennt, spila glimrandi vel gegn einu af sterkari liðum deildarinnar en detta síðan niður gegn veikari andstæðingi í næsta leik á eftir. Liðinu vantar sóknarmann í stað Jakobs Spangsberg og þá gæti hæðin háð liðinu en það er mjög lágvaxið sem gæti reynst hættulegt í föstum leikatriðum andstæðingana.

Lykilmenn: Steinarr Guðmundsson, Haukur Gunnarsson og Einar Örn Einarsson.


Komnir: Mentor Zhubi frá Svíþjóð, Jeton Gorqaj frá Svíþjóð, Björn Sigurbjörnsson frá Aftureldingu, Viðar Guðmundsson frá ÍH, Gunnar Bachmann Ólafsson frá Hvöt.

Farnir: Jakob Spangsberg í Val, Vigfús Arnar Jósepsson til baka úr láni í KR, Helgi Óttarr Hafsteinsson í Hvöt, Simon Karkov til Danmerkur.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig
Slapp
banner