Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 07. maí 2006 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 1.deild karla: 8. sæti
Mynd: Merki
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í áttunda sætinu í þessari spá voru Víkingar frá Ólafsvík sem fengu 65 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Víkinga.


Víkingur Ólafsvík
Þjálfari: Ejub Purisevic
Búningar: Gul treyja, svartar buxur, gulir sokkar.
Heimasíða: www.vikingur.vdsl.is

Víkingar frá Ólafsvík komu mörgum á óvart í fyrrasumar með því að lenda í fimmta sæti deildarinnar á sínu fyrsta ári eftir að hafa komið upp úr 2. deildinni. Árið 2003 var liðið í 3. deild og uppgangur liðsins undir stjórn Ejub Purisevic því verið ótrúlegur á skömmum tíma. Þar fer þjálfari sem hefur löngu sannað sig í bransanum og veit greinilega sínu viti.

Víkingsliðið hefur misst tvo lykilmenn úr sínu liði en það eru þeir Aleksandar Linta sem fór í KA og Hermann Geir Þórsson sem fór í HK. Það er slæmt fyrir liðið að missa þessa tvo leikmenn en í staðinn hefur það fengið tvo leikmenn frá Bosníu og einnig Vilhjálm Ragnar Vilhjámsson sem hefur sýnt að hann kann að sparka í bolta og er Víkingum mikill styrkur ef hann verður í formi.

Skotinn Craig Campbell verður áfram á Ólafsvík og einn landi hans bætist við, vinstri bakvörðurinn Kevin Foteringham, en Víkingar halda nánast öllum erlendu leikmönnunum sínum frá því í fyrra, þar á meðal Slavisa Mitic sem kom frá Fjölni fyrir tímabilið í fyrra. Erfitt er að spá fyrir um það hvar Víkingar munu enda í ár en spilamennska liðsins á undirbúningstímabilinu hefur verið ansi kaflaskipt.

Allavega er ljóst að ekkert lið getur bókað þrjú stig á Ólafsvík. Mikill áhugi er í bæjarfélaginu fyrir liðinu og hafa Víkingar mjög dyggan og skemmtilegan stuðningsmannahóp á bakvið sig. Þessi áhugi smitar út frá sér og sextán af 22 stigum sem Víkingur fékk í fyrra unnust á heimavellinum.

Styrkleikar: Aðalsmerki Ólafsvíkinga undanfarin ár hefur verið öflugur varnarleikur en Ejub er vægast sagt mjög varnarsinnaður þjálfari og hefur reynst mörgum liðum erfitt að brjóta varnarmúr Víkinga niður. Þrátt fyrir að þeir hafi misst aðeins úr vörninni má reikna með því að varnarleikurinn verði áfram þeirra helsti styrkur en varnarmaðurinn Dalibor Nedic sem er genginn til liðs við liðið á sex landsleiki að baki fyrir Bosníu.

Veikleikar: Víkingum hefur vantað alvöru markaskorara en enginn leikmaður þeirra náði að skora fleiri en þrjú mörk í 1. deildinni í fyrra. Adis Sjerotanovic heitir leikmaðurinn sem Ólafsvíkingar vonast til að sjái um að skora mörkin fyrir félagið í sumar en mikilvægt er að hann standi undir þeim væntingum sem til hans eru gerðar ef Víkingar ætla að endurtaka árangurinn frá því í fyrra eða gera betur

Lykilmenn: Elínbergur Sveinsson, Slavisa Mitic og Vilhjálmur R. Vilhjálmsson.


Komnir: Adis Sjerotanovic frá Bosníu/Herzegóvínu, Dalibor Nedic frá Bosníu/Herzegóvínu, Kevin Fotheringham frá Skotlandi, Vilhjálmur Vilhjálmsson frá Víkingi R. og Þór Steinar Ólafs frá Breiðablik.

Farnir: Aleksander Linta í KA, Craig Campbell ekki með vegna meiðsla, Hallur Kristján Ásgeirsson í Hött, Eyþór Páll Ásgeirsson í Breiðablik, Hermann Geir Þórsson í HK, Steven Mackay til Skotlands.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig
Slapp
banner
banner
banner