Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. maí 2006 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 1.deild karla: 7. sæti
Mynd: Merki
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjöunda sætinu í þessari spá voru Fjölnismenn sem fengu 74 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Fjölni en þess má geta að liðið fékk einu stigi minna en liðinu sem spáð er sjötta sæti.


Fjölnir
Þjálfari: Ásmundur Arnarsson
Búningar: Gul treyja, gular buxur, gulir sokkar.
Heimasíða: http://www.fjolnir.is

Hið unga lið Fjölnis er stórt spurningamerki og er erfitt að spá fyrir um gengi liðsins enda eru miklar breytingar á því milli ára. Ungir lánsmenn, aðallega frá FH, spiluðu stórt hlutverk með liðinu í fyrra þegar það kom talsvert á óvart og náði fjórða sæti deildarinnar. Ekki er ósennilegt að Ásmundur Arnarsson endurtaki leikinn í sumar og leikmenn úr Landsbankadeildinni sem ekki eru að fá tækifæri hjá sínum liðum hópist í Grafarvoginn stuttu eftir að mótið fer af stað.

Hinn smái en knái Atli Guðnason var markahæsti leikmaður Fjölnis í deildinni í fyrra en hann var lánaður frá FH. Óvíst er hvort að hann snúi aftur en sögur herma að hann hafi tjáð Fjölnismönnum það að ef hann fari eitthvert á lán í sumar verði það til þeirra. Fjölnisliðið hefur fengið nokkra unga leikmenn frá öðrum liðum og þar á meðal Ólaf Pál Johnson sem var ekki í plönum Teits Þórðarsonar hjá KR og snýr aftur til Fjölnis þar sem hann var á lánssamningi í fyrra.

Hinn fjölhæfi Kristófer Skúli Sigurgeirsson er kominn frá Fram og kemur með aukna reynslu í ungan leikmannahóp Fjölnis en hann verður spilandi aðstoðarþjálfari. Ásmundur spilaði með liðinu í fyrra og hefur aðeins verið að sprikla með liðinu á undirbúningstímabilinu og kæmi ekki á óvart þó hann yrði eitthvað með í sumar. Þá er kantmaðurinn Ómar Hákonarsson kominn frá Fram og ætti að verða góður liðsstyrkur í Grafarvoginum.

Styrkleikar: Lið Fjölnis er ungt að árum og er skipað leikmönnum sem finnst gaman að því að spila fótbolta og skín það
oft á tíðum í gegn. Liðið spilar á löngum köflum skemmtilegan fótbolta og gæti farið langt á leikgleðinni. Fjölnir hefur greinilega sterkan heimavöll og fengu sextán af 22 stigum sínum í fyrra á honum. Fjölnir hefur átt góða spretti á undirbúningstímabilinu og liðið sigraði m.a. KR í æfingaleik fyrir stuttu.

Veikleikar: Talsverðar breytingar eru á Fjölnisliðinu milli ára og gæti reynst erfitt fyrir Ásmund Arnarsson að ná að skapa almennilega liðsheild. Gengi liðsins gæti staðið og fallið með þeim lánsmönnum sem þeir fá. Liðið gæti verið fljótt að gefast upp ef kröftuglega á móti blæs.

Lykilmenn: Gunnar Már Guðmundsson, Kristófer Skúli Sigurgeirsson og Ómar Hákonarsson.


Komnir: Birgir Jóhannsson frá Fjölni, Kristófer Skúli Sigurgeirsson frá Fram, Ómar Hákonarson frá Fram, Sigmundur Pétur Ástþórsson í láni frá FH, Ólafur Páll Johnson frá KR, Einar Njálsson frá Val, Bjarni Jakob Gunnarsson frá Gróttu.

Farnir: Þórir Hannesson í Fylki, Tómas Leifsson til baka úr láni til FH, Atli Guðnason til baka úr láni til FH, Tómas Emil Guðmundsson í BÍ, Hálfdán Daðason í Bolungarvík.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig
Slapp
banner
banner