Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. maí 2006 08:02
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 7. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Víkingi 7. sæti í Landsbankadeild karla 2006.  Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig.  Víkingur fékk 33 stig út úr þessu.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.


Hvað segir Ólafur?
Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum.  Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku.  Hér að neðan má sjá hans álit á Víkingi.

Um Víking
Þetta er lið sem var að koma upp. Þeir gerðu það fínt í fyrstu deildinni í fyrra og fóru mikið á kraftinum, samheldni og baráttu. Það verður áfram einkennismerki þeirra. Það eru engar stjörnur í liðinu beint, en reyndar tveir sem voru hjá Val og Fylki í fyrra, Grétar og Viktor Bjarki.

Það sem ég hef séð til þeirra í vor er bland í poka. Ég hef ekki alveg náð að mynda mér heilsteypta skoðun á því. Þeir hafa verið að spila 4-4-2 og reynt að vera þéttir í varnarleiknum. Ég sé ekki í fljótu bragði hver á að skoða mörkin.

Styrkleikar:
Það er mikill styrkur fyir þá að fá Grétar í vörnina og Viktor Bjarka á miðjuna.

Veikleikar 
Veikleikarnir eru eins og síðast þegar þeir komu upp ákveðið reynsuleysi í efstu deild. Þetta er prýðilegir fótboltamenn en þetta reynsluleysi kemur oft fram í því að menn eru að tapa leikjum á síðustu mínútum. Það er hlutverk þjálfarans að berja í þá bresti og það er kraftur í Magga og hann á eftir að öskra á eftir þeim og láta þá gera það sem hann vill.

Gaman að fylgjast með
Viktor Bjarki á að vera lykilmaður í þessu liði en hann verður að vera jafnari en hann var hjá Fylki. Það er of langt á milli toppleiks og slæms leiks hjá honum. Svo er Grétar að koma inn í vörnina og binda hana saman. Ingvar Kale markvörður er efnilegur og það skiptir þá miklu að hann sé í standi.

Lykilmaður
Grétar Sigfinnur, Ingvar Kale og Viktor Bjarki er lykilmenn hjá Víkingum.



Þjálfarinn:
Magnús Gylfason er tekinn við þjálfun Víkings.  Magnús Gylfason tók við ÍBV í nóvember 2002 og gerði tveggja ára samning. Hann hafði áður þjálfað yngri landslið Íslands við góðan orðstýr auk þess að stjórna 2. flokki KR og hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR. Á síðara ári sínu með ÍBV, sumarið 2004, náði hann öðru sæti deildarinnar og liðið átti möguleika á Íslandsmeistaratitli allt fram til loka deildarinnar. Hann tók svo við KR um haustið en hætti með liðið á miðju sumri.  Magnús tók svo við Víkingi í vetur. 


Líklegt byrjunarlið Víkings:

 

Völlurinn:
Glæsileg stúka í Víkinni var vígð skömmu fyrir fyrsta leik Landsbankadeildarinnar sumarið 2004. Hún tekur 1149 í sæti og er yfirbyggð svo enginn þarf að þola rigningu á höfuð sér. Auk þess eru 100 stæði án þaks.

 
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna Víkinga eru Heimir Karlsson, Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður, Hallur Hallsson, Kormákur, Jóhann Óli auðjöfur, meðlimir hljómsveitarinnar Leaves, Guðni Már Henningsson, Gulli Helga, Sveppi, Logi Bergmann Eiðsson, séra Pálmi Matthíasson, Sólveig Pétursdóttir Forseti alþingis og Kristinn Björnsson maður hennar, Heimir Gunnlaugsson tölvunarfræðingur og Guðjón Guðmundsson viðskiptafræðingur

Spáin

nr. Lið Stig
1 FH 97
2 ÍA 83
3 KR 74
4 Valur 73
5 Keflavík 65
6 Fylkir 46
7 Víkingur 33
8 ÍBV 30
9 Grindavík 25
10 Breiðablik 24

Um félagið

Knattspyrnufélagið Víkingur
Stofnað 1908

Titlar:
Íslandsmeistarar: 1920, 1924, 1981, 1982, 1991.
Bikarmeistarar: 1971


Búningar:
Prostar

Aðalbúningur:

Peysa: Rauð og svört / Buxur: Svartar / Sokkar: Hvítir

Varabúningur:
Peysa: Hvít / Buxur: Hvítar / Sokkar: Rauðir

Opinber vefsíða:
Víkingur.is


Stuðningsmannasíða:

Víkingur.net


Komnir og farnir

Nýjir frá síðasta sumri:
Jökull I Elísabetarson frá KR
Arnar Jón Sigurgeirsson frá KR
Ágúst Örlaugur Magnússon frá ÍA
Carl Dickinson frá Stoke (2 mánaða samningur)
Keith Thomas frá Stoke (2 mánaða samningur)
Magnús Gylfason þjálfari frá KR
Danislav Jevtic frá Serbíu og Svartfjallalandi
Farnir frá síðasta sumri:
Jóhann Hreiðarsson í Val, til baka úr láni
Elvar Lúðvík Guðjónsson í ÍR
Andri Steinn Birgisson í Grindavík
Stefán Örn Arnarson í Keflavík
Daði Kristjánsson í Þór
Einar Guðnason í Völsung (á láni)
Jóhann Guðmundsson í Stjörnuna
Elmar Dan Sigþórsson í Fjarðabyggð (á láni)
Komnir til baka úr láni:
Grétar Sigfinnur Sigurðsson frá Val
Jón Haukur Haraldsson frá Sindra
Viktor Bjarki Arnarsson frá Fylki
Valur Adolf Úlfarsson frá ÍR
 

Leikmenn Víkings

nr. Nafn Staða
1. Ingvar Þór Kale Markvörður
2. Höskuldur Eiríksson Varnarmaður
3 Arnar Jón Sigurgeirsson Miðjumaður
4. Björgvin Freyr Vilhjálmss Miðjumaður
5. Milos Glogovac Varnarmaður
6. Haukur Armin Úlfarsson Miðjumaður
9. Jón Guðbrandsson Miðjumaður
10. Daníel Hjaltason Framherji
11. Grétar Sigfinnur Sigurðss Varnarmaður
12. Orri Einarsson Markvörður
13. Valur Adolf Úlfarsson Varnarmaður
14. Viktor Bjarki Arnarsson Miðjumaður
15. Keith Thomas Framherji
16. Halldór Jón Sigurðsson Miðjumaður
19. Davíð Þór Rúnarsson . Framherji
20. Kári Einarsson Framherji
21. Þorvaldur Sveinn Sveinss Miðjumaður
22. Magnús Þór Magnússon Markvörður
24. Danislav Jevtic Framherji
25. Hörður Sigurjón Bjarnas. Varnarmaður
26. Stefán Kári Sveinbjörnsson Miðjumaður
27. Carl Dickenson Miðjumaður
28. Rannver Sigurjónsson Miðjumaður
30. Andri Tómas Gunnarsson Varnarmaður
Ágúst Örlaugur Magnúss Varnarmaður
Jökull I. Elísabetarson Miðjumaður
 

Leikir Víkings

Dags: Tími Leikur
14. maí 16:00 Víkingur - Fylkir
19. maí 19:15 Keflavík - Víkingur
25. maí 16:00 Víkingur - Breiðablik
28. maí 19:15 ÍBV - Víkingur
5. júní 19:15 Víkingur - Valur
8. júní 19:15 Víkingur - Grindavík
15. júní 19:15 KR - Víkingur
22. júní 19:15 Víkingur - FH
28. júní 19:15 ÍA - Víkingur
11. júlí 19:15 Fylkir - Víkingur
18. júlí 19:15 Víkingur - Keflavík
27. júlí 19:15 Breiðablik - Víkingur
10. ágúst 19:15 Víkingur - ÍBV
20. ágúst 20:00 Valur - Víkingur
27. ágúst 18:00 Grindavík - Víkingur
10. sept 14:00 Víkingur - KR
17. sept 14:00 FH - Víkingur
23. sept 14:00 Víkingur - ÍA

Slapp
banner
banner
banner