Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 6. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Fylkir 6. sæti í Landsbankadeild karla 2006. Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Fylkir fékk 46 stig út úr þessu.
|
Sérfræðingarnir sem spáðu eru: Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.
H vað segir Ólafur? Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum. Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku. Hér að neðan má sjá hans álit á Fylki.
Um Fylkir Það verður spurning hvernig þeir koma til með að spila í sumar og spurning hvort Leifur breyti þeim leikstíl sem hefur verið í Árbænum í nokkurn tíma að vilja spila inn í markið. Þeir eru áfram að spila 4-3-3 og Leifur hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig á að spila fótbolta og vill eflaust koma því inn. Hvort honum hafi tekist að koma sínum leikstíl inn í vetur er erfitt að segja.
Fylkisliðið er eitt af þeim liðum sem getur haldið boltanum endalaust og hefur verið undanfarin ár en þeir hafa ekki verið nógu beittir. Ef þeir ná að skapa jafnvægi milli þess að spila boltanum á milli sín og að vera beittir þá eru þeir stórhættulegir. Ég er viss um að Leifur er alveg meðvitaður um það og er búinn að vera að vinna í því. Miðað við öll önnur lið í deildinni hafa þeir misst flesta lykil leikmenn. Það sem þeir hafa fengið í staðinn er Peter Gravesen sem er mjög öflugur leikmaður og Fjalar. Svo hafa þeir fengið Palla og Jens úr Þrótti og það er spurningamerki með þá báða hvort þeir séu nógu sterkir til að styrkja Fylkisliðið. Palli er með gríðarlega reynslu og ég sá hann nýlega og Atli myndi bara verða stoltur af forminu sem hann er í. Jens er ágætisleikmaður sem þarf að vera í fantaformi til að geta spilað með Fylki.
Styrkleikar: Styrkleikar liðsins sem slíks eru að þeir eru búnir að fá nýjan þjálfara núna sem hefur verið í kringum meistaralið, góðan þjálfara sem er mjög skipulagður og ég held að gengi Fylkisliðsins muni velta mikið á því hvernig Leifur mun spila úr spilunum. Styrkleikar eru líka að þeir geta spilað fótbolta og eru flest allir með góða tilfinningu og geta spilað mjög skemmtilegan fótbolta. En það getur líka verið veikleiki því þeir hafa ekki alltaf náð því jafnvægi milli þess að spila árangursríkan og fallegan fótbolta.
Veikleikar Veikleiki liðsins er að þeir hafa oft ætlað að fara flóknu leiðina að markinu og þar skipir miklu máli finnst mér að Leifur nái að breyta því. Það hefur loðað við þá að vera svolítið léttir á bárunni og þeir verða að taka þetta af meiri festu innan vallar og utan, ekki síst utan vallar. Það gengur ekki með klúbb eins og Fylki og möguleikana sem þeir hafa að þeir skuli ekki ná að stíga skrefið til fulls.
Gaman að fylgjast með Það verður gaman að fylgjast með Eyjólfi Héðinsyni og Hrafnkeli Helgasyni. Kjartan Breiðdal hefur mér þótt mjög efnilegur sem bakvörður eða kantmaður og það er synd ef hann nær ekki að spila neitt vegna meiðslanna. Christian Christiansen verður að sýna að hann sé atvinnumaður á Íslandi með reynslu í dönsku úrvalsdeildinni. Gravesen er að vísu að spila úti á kanti núna og það er erfitt að vera leiðtogi þar úti en hann er það góður leikmaður að hann á að vera lykilmaður í þessu liði.
Lykilmaður Mér finnst að Guðni Rúnar verði að axla mikla ábyrgð miðað við þá leikmenn sem eru eftir og taka mikið á sínar herðar og verða mikill nagli í þessu liði. Haukur Ingi er víst í fantaformi og það er spurning hvernig meiðslatíðnin verða hjá honum. Ef hann verður í standi verður hann einn af styrkleikunum í liðinu með hraðann.
Þjálfarinn: Leifur Garðarsson er þjálfari Fylkis en hann tók við liðinu í haust. Leifur hafði áður verið aðstoðarþjálfari FH undanfarin 3 tímabil þegar FH endaði í 2. sæti fyrsta árið og varð Íslandsmeistari næstu tvö á eftir.
Leifur sem er skólastjóri í Áslandsskóla í Hafnarfirði hefur einnig starfað við þjálfun hjá KR þar sem hann sá um yngriflokkastarf fyrir nokkrum árum. Hann var um árabil einn besti körfuboltadómari landsins en hætti því þegar annir fóru að aukast.
Líklegt byrjunarlið Fylkis:
Völlurinn: Fylkir leikur heimaleiki sína á Fylkisvelli í Árbænum. Völlurinn er sagður taka um 2872 áhorfendur en þrátt fyrir það tókst að troða 4833 áhorfendum á leik liðsins gegn KR fyrir þremur árum. Nú er verið að vinna í að setja 1200 sæti á Fylkisvöll en sætin fengu Fylkismenn af Laugardalsvelli.
Stuðningsmenn: Meðal þekktra stuðningsmanna Fylkis eru: Jón Magnússon, Sigurður G. Guðjónsson forstjóri Norðurljósa, Haraldur í Andra, Jói úr 70 mínútum og Idolinu, Kári Sturluson tónleikahaldari, Hreggviður Jónsson fyrrum forstjóri Norðurljósa, Dagur Eggersson læknir.
| |
|
Um félagið |
|
Fylkir Stofnað 1967
Titlar: Bikarmeistarar: 2001, 2002
Búningar: Umbro
Aðalbúningur: Peysa: Appelsínugul / Buxur: Svartar / Sokkar: Appelsínugulir
Varabúningur: Peysa: Svört / Buxur: Svartar / Sokkar: Svartir
Opinber vefsíða: Fylkir.com
|
|
Komnir og farnir |
| Nýjir frá síðasta sumri: |
Þórir Hannesson frá Fjölni Jens Sævarsson frá Þrótti Páll Einarsson frá Þrótti Hermann Aðalgeirsson frá Völsungi Fjalar Þorgerisson frá Þrótti Leifur Garðarsson þjálfari frá FH Peter Gravesen frá Herfölge í Danmörku |
| Farnir frá síðasta sumri: |
Sven Eric Hans Gustafsson í Svíþjóð Peter Tranberg til Danmerkur Finnur Kolbeinsson hættur Gunnar Þór Pétursson hættur Björgólfur Takefusa í KR Valur Fannar Gíslason í Val Helgi Valur Daníelsson í Öster, Svíþjóð Kristján Valdimarsson í Grindavík Viktor Bjarki Arnarson í Víking, til baka úr láni Þorlákur Árnason þjálfari í Stjörnuna |
| Komnir til baka úr láni: |
Albert Brynjar Ingason frá Þór Theódór Óskarsson frá ÍH |
|
Leikmenn Fylkis |
| nr. |
Nafn |
Staða |
| 1. |
Bjarni Þórður Halldórsson |
Markvörður |
| 2. |
Ragnar Sigurðsson |
Varnarmaður |
| 3 |
Guðni Rúnar Helgason |
Varnarmaður |
| 4. |
Þórir Hannesson |
Varnarmaður |
| 5. |
Ólafur Ingi Stígsson |
Miðjumaður |
| 6. |
Peter Gravesen |
Miðjumaður |
| 7. |
Hrafnkell Helgi Helgason |
Miðjumaður |
| 8. |
Páll Einarsson |
Miðjumaður |
| 9. |
Björn Viðar Ásbjörnsson |
Framherji |
| 10. |
Hermann Aðalgeirsson |
Framherji |
| 11. |
Kjartan Ágúst Breiðdal |
Miðjumaður |
| 12. |
Jóhann Ólafur Sigurðsson |
Markvörður |
| 13. |
Jens Elvar Sævarsson |
Varnarmaður |
| 14. |
Haukur Ingi Guðnason |
Framherji |
| 16. |
Andrés Már Jóhannesson |
Varnarmaður |
| 18. |
Fjalar Þorgeirsson |
Markvörður |
| 19. |
Sævar Þór Gíslason |
Framherji |
| 20. |
Arnar Þór Úlfarsson |
Varnarmaður |
| 21. |
Eyjólfur Héðinsson |
Miðjumaður |
| 22. |
Theódór Óskarsson |
Framherji |
| 23. |
Christian Christiansen |
Framherji |
| 24. |
Albert Brynjar Ingason |
Framherji |
| 25. |
Sigurður Helgi Harðarson |
Miðjumaður |
| 26. |
Sigurjón Magnús Kevinss |
Framherji |
| 27. |
Agnar Bragi Magnússon |
Miðjumaður |
| 28. |
Jón Björgvin Hermannss |
Miðjumaður |
|
Leikir Fylkis |
| Dags: |
Tími |
Leikur |
| 14. maí |
16:00 |
Víkingur - Fylkir |
| 19. maí |
19:15 |
Fylkir - Grindavík |
| 24. maí |
19:15 |
KR - Fylkir |
| 28. maí |
19:15 |
Fylkir - FH |
| 5. júní |
19:15 |
ÍA - Fylkir |
| 8. júní |
19:15 |
Valur - Fylkir |
| 12. júní |
19:15 |
Fylkir - Keflavík |
| 22. júní |
19:15 |
Breiðablik - Fylkir |
| 28. júní |
19:15 |
Fylkir - ÍBV |
| 11. júlí |
19:15 |
Fylkir - Víkingur |
| 18. júlí |
19:15 |
Grindavík - Fylkir |
| 30. júlí |
19:15 |
Fylkir - KR |
| 10. ágúst |
19:15 |
FH - Fylkir |
| 20. ágúst |
18:00 |
Fylkir - ÍA |
| 28. ágúst |
18:00 |
Fylkir - Valur |
| 10. sept |
14:00 |
Keflavík - Fylkir |
| 17. sept |
14:00 |
Fylkir - Breiðablik |
| 23. sept |
14:00 |
ÍBV - Fylkir | |