Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 09. maí 2006 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 1.deild karla: 6. sæti
Mynd: Merki
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjötta sætinu í þessari spá var Stjarnan sem fékk 75 stig af 162 mögulegum eða stigi meira en Fjölnir sem er spáð sjöunda sæti. Kíkjum á umfjöllun okkar um Stjörnuna úr Garðabæ.


Stjarnan
Þjálfari: Jörundur Áki Sveinsson
Búningar: blá treyja, bláar buxur, bláir sokkar.
Heimasíða: http://www.stjarnan.is

Það lítur út fyrir að vera að birta til í Garðabænum eftir að síðustu ár hafa verið frekar erfið fyrir félagið. Undir stjórn Jörundar Áka Sveinssonar hefur Stjörnunni tekist að endurheimta sæti sitt í 1. deild en liðið fylgdi Leikni verðskuldað upp úr 2. deildinni í fyrra. Áhugi Garðbæinga virðist vera að aukast og voru oft á tíðum fleiri áhorfendur á leikjum liðsins í 2. deildinni en verið höfðu á leikjum þess í þeirri fyrstu.

Það ar mjög mikilvægt að ná upp góðri stemningu kringum liðið en áhugaleysið í kringum félagið hefur verið algjört síðustu ár. Aðalvöllur Stjörnunnar er gervigrasvöllur og er liðið það fyrsta í landsdeildunum á Íslandi til að nota gervigras sem aðalvöll. Má búast við að Stjarnan nái megninu af sínum stigum í Garðabænum en athyglisvert er þó að skoða tímabilið í fyrra þar sem liðið náði svipað mörgum stigum á heimavelli og útivelli.

Liðið heldur nánast öllum sínum leikmönnum frá því í fyrra en bætir við sig þremur sterkum. Það eru markvörðurinn ungi Hannes Þór Halldórsson sem er uppalinn hjá Leikni en lék með Aftureldingu í fyrra við góðan orðstýr, Þorvaldur Árnason sem einnig kemur frá Aftureldingu og skoraði fjórtán mörk í sautján leikjum í 2. deildinni og svo síðast en alls ekki síst Þormóður Egilsson sem hefur tekið skóna úr hillunni. Margir bíða eflaust spenntir eftir því að sjá hvernig Móði stendur sig í 1. deildinni, hokinn af reynslu, en einnig verður sérstakt að sjá hann klæðast öðrum búningi en KR-treyjunni.

Með tilkomu Þorvaldar hefur liðið tvo markahæstu leikmennina úr 2. deild í sínum röðum en hann og Guðjón Baldvinsson skoruðu samtals 28 mörk í fyrrasumar og ættu hæglega að geta sett nokkra bolta í sumar. Guðjón er mjög skemmtilegur leikmaður og var hann valinn bæði bestur og efnilegastur í 2. deildinni í fyrra.

Styrkleikar: Leikmannahópur Stjörnunnar er klárlega nægilega sterkur til að liðið geti náð fínum árangri í þessari deild. Mjög heilsteypt lið sem hefur þó kannski ekki marga afburðaleikmenn en sterka liðsheild. Sterk sóknarlína.

Veikleikar: Ef Stjarnan byrjar illa erum við hræddir um að leikmenn liðsins jafnt og stuðningsmenn gætu verið fljótir að leggja árar í bát. Liðið gæti átt mjög kaflaskipt sumar, tekið góða rispu en síðan dottið niður á lægra plan nokkra leiki í röð. Eru nýliðar í deildinni þetta árið og spurning hve fljótt þeir ná að fóta sig.

Lykilmenn: Þormóður Egilsson, Hannes Þór Halldórsson og Guðjón Baldvinsson.


Komnir: Þormóður Egilsson byrjaður aftur, Þorvaldur Árnason frá Aftureldingu, Hannes Þór Halldórsson frá Aftureldingu, Tómas Páll Þorvaldsson frá Val, Jóhann Guðmundsson frá Víkingi.

Farnir: Jónmundur Grétarsson í Hauka, Brynjar Sverrisson í Þrótt, Marko Pavlov til Frakklands, Atli Knútsson.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Stjarnan 75 stig
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig
Slapp
banner
banner
banner