|
Sérfræðingarnir sem spáðu eru: Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.
H vað segir Ólafur? Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum. Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku. Hér að neðan má sjá hans álit á Keflavík.
Um Keflavík Að mínu mati átti Keflavíkurliðið fínt tímabil í fyrra, þeir voru ofarlega í deildinni og spiluði ágætlega íEvrópukeppninni. Þeir spiluðu skemmtilegan fótbolta. Menn héldu að þegar Gaui fór myndi allt hrynja hjá Keflavík en þeir sneru bökum saman og áttu mjög skemmtilegt tímabil.
Mér fannst Kristján ná að halda vel utan um þá. Þeir voru með Gumma Steinars og Hörð sem voru að skora. Jónas Guðni finnst mér mjög góður leikmaður, Guðmundur Mete kom sterkur inn í vörnina og Hólmar var mjög góður. Þetta er svipað og með Skagann. Þeir fara alltaf á þessari hefð og samheldni sem er til staðar. Þetta er lítið bæjarfélag, mikil samheldni milli leikmanna og þeir spila skemmtilegan bolta. Fullt af strákum sem geta og vilja spila fótbolta. Þeir eru að uppskera með marga unga leikmenn eftir að hafa unnið vel í unglingastarfi.
Styrkleikar: Styrkleikar þeirra eru samheldnin, vinnusemi og að annað árið í röð eru þeir með sama þjálfarann sem er að gera fína hluti. Styrkleikar eru líka þeir að það eru þarna strákar sem hafa risið upp úr meðalmennskunni eins og Guðjón Árni sem bakvörður, Jónas Guðni og Gummi Steinars. Þegar Ingvi Rafn kemur aftur er hann einn allra skemmtilegasti leikmaðurinn í deildinni. Það var synd að hann skyldi brotna í fyrra og missa af tímabilinu.
Þeir verjast vel og eru ágætlega skipulagðir og í fyrra voru þeir mjög beittir í sóknarleiknum. Þeir gátu ógnað með skotum frá Gumma og í loftinu með Herði. Það er spurning hvernig þeir leysa það. Þeir hafa fengið Magnús Þorsteins, Þórarinn Kristjáns, Hallgrím frá Þór sem er efnilegur og svo er spurning hvernig þessir útlendingar verða.
Veikleikar Ég held að það hljóti að vera veikleiki að hafa misst Hörð. Hættan gæti verið sú að það gæti orðið erfitt að fylgja eftir góðu tímabili í fyrra. En ég veit það ekki því það eru kannski ekki gerðar miklar væntingar til þeirra í ár svo það gæti hjálpað þeim.
Gaman að fylgjast með Ég hef mjög gaman af að fylgjast með Jónasi Guðna hvort sem hann spilar sem bakvörður eða á miðjunni. Það verður mjög spennandi að fylgjast með honum. Gummi Steinars á góðum dögum þegar hann nennir að vinna í báðar áttir er mjög öflugur.
Lykilmaður Markvörðurinn er lykilmaður. Ómar eða Magnús Þormar, mér finnst þeir báðir hafa staðið sig vel svo það skiptir í raun ekki máli hvor er, þeir eru báðir mjög frambærilegir. Svo vona ég sannarlega að Ingvi Rafn komi aftur og þegar hann kemur aftur verður hann lykilmaður í þessu liði.
Þjálfarinn: Kristján Guðmundsson er þjálfari Keflavíkur annað árið í röð. Hann tók óvænt við liðinu korteri fyrir mót í fyrra er Guðjón Þórðarson hætti skyndilega. Kristján hafði verið aðstoðarmaður hans og var fenginn til að stjórna liðinu í fyrstu leikjum deildarinnar. Fljótlega var hann svo ráðinn aðalþjálfari liðsins og náði fínum árangri með liðið sem endaði í fjórða sæti deildarinnar. Kristján kemur frá Akureyri og þjálfaði lið Þórs þar í fjögur ár. Þaðan fór hann til ÍR og áður en hann fór til Keflavíkur í fyrra hafði hann þjálfað 2. flokk KR.
Líklegt byrjunarlið Keflavíkur:
Völlurinn: Áhorfendaaðstaða við Keflavíkurvöll hefur verið bætt til muna því búið er að setja 1000 ný sæti við völlinn sem fengin voru af Laugardalsvelli.. Í heildina eru því komin 1100 sæti og hluti þeirra er undir stúku. Í heildina er gert ráð fyrir að 4000 áhorfendur geti verið á leik á vellinum.
Stuðningsmenn: Meðal þekktra stuðningsmanna Keflavíkur eru: Rúnar Júlíusson eilífðarrokkari og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu, Kjartan Másson, Guðni Kjartansson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir úr Kastljósinu, Hjálmar Árnason þingmaður.
| |
|
Um félagið |
|
Keflavík Stofnað 1929
Titlar: Íslandsmeistarar: 1964, 1969, 1971, 1973 Bikarmeistarar: 1975, 1997,2004
Búningar: Puma
Aðalbúningur: Peysa: Dökkblá / Buxur: Dökkbláar / Sokkar: Dökkbláir
Varabúningur: Peysa: Rauð / Buxur: Rauðar / Sokkar: Rauðir
Opinber vefsíða: Keflavík.is/Knattspyrna
Vefsíða stuðningsmanna: Blog.Central.is/kef-fc
|
|
Komnir og farnir |
| Nýjir frá síðasta sumri: |
Hallgrímur Jónasson frá Þór Akureyri Magnús Sverrir Þorsteinsson frá Grindavík Þórarinn Brynjar Kristjánsson frá Þrótti Buddy Farah frá Líbanon Geoff Miles frá Haukum Stefán Örn Arnarson frá Víkingi Danny Severino frá Ástralíu |
| Farnir frá síðasta sumri: |
Ásgrímur Albertsson í HK Michael Johansson til Englands Gestur Arnar Gylfason í Njarðvík Hörður Sveinsson til Silkeborg Bjarni Sæmundsson í Njarðvík á láni Guðmundur Árni Þórðarson í Njarðvík á láni Ólafur Ívar Jónsson í Reyni Sandgerði Brynjar Örn Guðmundsson í Reyni Sandgerði |
| Komnir til baka úr láni: |
|
|
Leikmenn Keflavíkur |
| nr. |
Nafn |
Staða |
| 1. |
Ómar Jóhannsson |
Markvörður |
| 2. |
Guðmundur Viðar Mete |
Varnarmaður |
| 3 |
Guðjón Árni Antoníusson |
Varnarmaður |
| 4. |
Kenneth I. Gustafsson |
Varnarmaður |
| 5. |
Jónas Guðni Sævarsson |
Varnar/miðju |
| 6. |
Badui Farah |
Varnar/miðju |
| 7. |
Hólmar Örn Rúnarsson |
Miðjumaður |
| 8. |
Ingvi Rafn Guðmundsson |
Miðjumaður |
| 9. |
Guðmundur Steinarsson |
Framherji |
| 10. |
Símun Eiler Samuelsen |
Framherji |
| 11. |
Baldur Sigurðsson |
Varnar/miðju |
| 12. |
Magnús Þormar |
Markvörður |
| 13. |
Einar Orri Einarsson |
Miðjumaður |
| 14. |
Þorsteinn Atli Georgsson |
Varnarmaður |
| 15. |
Ólafur Þór Berry |
Varnarmaður |
| 16. |
Davíð Örn Hallgímsson |
Framherji |
| 17. |
Magnús S. Þorsteinsson |
Framherji |
| 19. |
Ólafur Jón Jónsson |
Framherji |
| 20. |
Þórarinn B. Kristjánsson |
Framherji |
| 21. |
Geoff Miles |
Varnarmaður |
| 22. |
Hallgrímur Jónasson |
Miðjumaður |
| 23. |
Branislav Milicevic |
Varnarmaður |
| 24. |
Garðar Eðvaldsson |
Varnarmaður |
| 25. |
Ragnar Magnússon |
Varnarmaður |
| 26. |
Benedikt Birkir Hauksson |
Framherji |
| 27. |
Daniel Servino |
Miðjumaður |
| 28. |
Viktor Guðnason |
Miðjumaður |
| 30. |
Stefán Örn Arnarson |
Framherji |
|
Leikir Keflavíkur |
| Dags: |
Tími |
Leikur |
| 14. maí |
16:00 |
ÍBV - Keflavík |
| 19. maí |
19:15 |
Keflavík - Víkingur |
| 24. maí |
20:00 |
Grindavík - Keflavík |
| 28. maí |
19:15 |
Keflavík - KR |
| 5. júní |
19:15 |
FH - Keflavík |
| 8. júní |
19:15 |
Keflavík - ÍA |
| 12. júní |
19:15 |
Fylkir - Keflavík |
| 21. júní |
19:15 |
Valur - Keflavík |
| 29. júní |
19:15 |
Keflavík - Breiðablik |
| 11. júlí |
19:15 |
Keflavík - ÍBV |
| 18. júlí |
19:15 |
Víkingur - Keflavík |
| 27. júlí |
19:15 |
Keflavík - Grindavík |
| 9. ágúst |
19:15 |
KR - Keflavík |
| 21. ágúst |
18:00 |
Keflavík - FH |
| 28. ágúst |
18:00 |
ÍA - Keflavík |
| 10. sept |
14:00 |
Keflavík - Fylkir |
| 17. sept |
14:00 |
Keflavík - Valur |
| 23. sept |
14:00 |
Breiðablik - Keflavík | |