Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 10. maí 2006 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 1.deild karla: 5. sæti
Myndir í greinni eru frá Dagsljós.
Myndir í greinni eru frá Dagsljós.
Mynd: Merki
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu í þessari spá var KA sem fékk 86 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um KA frá Akureyri.


KA
Þjálfari: Slobodan Milisic
Búningar: gul treyja, bláar buxur, gulir sokkar.
Heimasíða: http://www.ka-sport.is/fot

Miklar breytingar hafa orðið á liði KA frá því í fyrra en tveir markahæstu leikmenn liðsins eru horfnir á braut. Jóhann Þórhallsson fór í Grindavík og Pálmi Rafn Pálmason í Val en þessir tveir leikmenn skoruðu samtals yfir helming marka KA-liðsins í 1. deildinni í fyrra. Sandor Forizs fór aftur á Ólafsfjörð, Örn Kató Hauksson fylgdi Pálma í Val og Jóhann Helgason fór sömu leið og nafni sinn Þórhallsson.

KA var spáð öðru sæti deildarinnar af Fótbolta.net í fyrra en hafnaði sæti neðar en það og komst því ekki upp í úrvalsdeildina. Slobodan Milisic er að þreyta frumraun sína í meistaraflokksþjálfun en ljóst er að hann á erfitt verkefni fyrir höndum í sumar eftir allar þær breytingar sem átt hafa sér stað á liðinu. Minni spámenn hafa komið í stað þeirra sem eru farnir en miðjumaðurinn Ingvi Hrafn Ingvason sem kom frá Leiftri/Dalvík gæti reynst liðinu mikilvægur liðsstyrkur. Einnig eru margir ungir strákar að koma upp úr yngriflokkastarfinu, svo sem Steinn Gunnarsson og Almarr Ormarsson en Almarr hefur leikið mjög vel á miðjunni á undirbúningstímabilinu.

Meira mun mæða á Hreini Hringssyni í sóknarlínu KA nú en oft áður og þarf hann helst að ná yfir tíu mörkum í sumar. Hann hefur sýnt það oft að hann er fullfær um að ná því. Spennandi verður að sjá hvernig miðjumaðurinn Srdjan Tufegdzic mun standa sig í gula búningnum en til hans eru gerðar miklar væntingar og þá náði KA að krækja sér í Slóvena í vörnina í gær og verður einnig
gaman að sjá hvernig hann verður. Fótbolti.net telur einnig
að KA hafi gert sniðuga hluti með að krækja í Aleksandar Linta
frá Víkingi Ólafsvík.

Styrkleikar: Varnarleikurinn ætti að verða traustur hjá KA í sumar og gæti fleytt liðinu langt. Fyrir aftan varnarlínuna er ungverski markvörðurinn Matus Sandor sem er í úrvalsdeildarklassa og var mjög mikilvægt fyrir Akureyringa að halda honum í sínum herbúðum. Liðið náði jafngóðum árangri á heimavelli og útivelli í fyrra og er sterkt ef það heldur áfram að sækja stig á höfuðborgarsvæðið.

Veikleikar: Liðið hefur misst marga lykilmenn frá því í fyrra eins og fram hefur komið og er spurning hvort að það muni einfaldega ná að höndla það. Því virðist skorta breidd og má alls ekki við því að missa sína helstu leikmenn í meiðsli, þá er ekki von á góðu. Sóknarleikurinn er spurningamerki.

Lykilmenn: Matus Sandor, Srdan Tufegdzig og Hreinn Hringsson.


Komnir:
Janez Vrenko frá Slóveníu, Aleksandar Linta frá Víkingi Ólafsvík, Srdjan Tufegdzic frá Pozarevc í Serbíu, Ingvi Hrafn Ingvason frá Dalvík og
Sveinn Elías Jónsson frá Dalvík.
Farnir:
Pálmi Rafn Pálmason í Val, Jóhann Þórhallsson í Grindavík, Jóhann Helgason í Grindavík, Haukur Ingvar Sigurbergsson í Fjarðarbyggð, Sandor Zoltan Forizs í KS/Leiftur, Lörinc Antal til Ungverjalands, Örn Kató Hauksson í Val.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. KA 86
6. Stjarnan 75 stig
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig
Slapp
banner
banner