Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu í þessari spá var HK sem fékk 114 stig af 162 mögulegum og var þar með næstum 30 stigum á undan KA sem er í fimmta sætinu. Kíkjum á umfjöllun okkar um Kópavogsliðið.
HK
Þjálfari: Gunnar Guðmundsson
Búningar: Hvít treyja, rauðar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.hk.is
Eftir að hafa átt gæfuríkt ár 2004 þá olli HK vonbrigðum í fyrrasumar og endaði í sjöunda sæti 1. deildarinnar. Liðið var ansi óheppið með meiðsli og til að mynda gat hinn reynslumikli Hörður Már Magnússon aðeins tekið þátt í átta leikjum af átján. Eftir að hafa komið á óvart árið á undan var annað uppi á teningnum að þessu sinni og ljóst að Gunnar Guðmundsson á erfitt verkefni fyrir höndum að koma liðinu aftur á beinu brautina.
Vængmaðurinn Jón Þorgrímur Stefánsson er kominn í HK frá Íslandsmeisturum FH. Hinsvegar er Rúrik Gíslason farinn í Charlton, varamarkvörðurinn Beitir Ólafsson hefur verið lánaður í Aftureldingu og svo var Árni Thor Guðmundsson seldur til ÍA. Það er slæmt fyrir HK að missa Árna en hann hefur verið einn af allra bestu leikmönnum deildarinnar undanfarin ár og sem klettur í vörninni.
HK er þó ekki á flæðiskeri hvað varðar miðverði en Ásgrímur Albertsson er náttúrulega kominn aftur heim frá Keflavík og þá hefur Gunnar verið að nota Hermann Geir Þórsson í miðverðinum en Hermann kemur frá Víking Ólafsvík og getur leyst margar stöður. Einnig hefur liðið Jóhann Björnsson sem er ungur en traustur leikmaður. HK var í leit að bakverði í vetur og fann Finnboga Llorens sem stóð sig fantavel í þeim leikjum sem hann spilaði fyrir ÍA í Landsbankadeildinni í fyrra.
Veikleikar: Mikið mun mæða á Herði Má Magnússyni í sumar og má liðið ekki við því að hann meiðist. Liðinu virðist vanta alvöru sóknarmann sem getur potað inn mörkum og voru gríðarleg vonbrigði fyrir HK að Þórður skyldi meiðast. Liðið virðist einfaldlega ekki vera nægilega sterkt sóknarlega.
Lykilmenn: Gunnleifur Gunnleifsson, Hörður Már Magnússon og Jón Þ. Stefánsson.
Komnir: Finnbogi Llorens frá ÍA, Hermann Geir Þórsson frá Víkingi Ólafsvík, Jón Þorgrímur Stefánsson frá FH, Þórður Birgisson frá KS.
Farnir: Rúrik Gíslason í Charlton, Árni Thor Guðmundsson í ÍA, Trausti Björn Ríkharðsson til ÍR, Guðmundur Atli Steinþórsson til Grindavíkur, Eyþór Guðnason í Njarðvík, Jóhann Ingi Jóhannsson á láni til Fjarðabyggð, Beitir Ólafsson á láni til Aftureldingar.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. HK 114
5. KA 86
6. Stjarnan 75 stig
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig



