Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 11. maí 2006 08:02
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 4. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Val  4. sæti í Landsbankadeild karla 2006.  Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig.  Valur fékk 73 stig út úr þessu.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.



Hvað segir Ólafur?
Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum.  Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku.  Hér að neðan má sjá hans álit á Val.

Um Val
Þeir enduðu í öðru sæti í fyrra eftir að hafa komið upp úr fyrstu deild, þeir áttu frábært tímabil. Í fyrra var sterk liðsheild og góður agi og stjórn á liðinu. Þeir spiluðu einfaldan en árangursríkan bolta þar sem allir voru að vinna mjög vel. Svo sprungu út þarna leikmenn sem menn áttu ekki von á, eins og Matthías sem skoraði mikið. Bjarni Ólafur átti frábært tímabil í fyrra, Gummi Ben fékk endurnýjun lífdaga og Grétar og Atli Sveinn voru mjög sterkir í vörninni. Kjartan markvörður átti líka gott tímabil.

Nú hafa þeir misst Grétar og Stefán Helga sem kom upp og spilaði mjög vel í fyrra. Sigþór er hættur. Þeir hafa misst sterka pósta en fengið góða líka. Pálma Rafn, Val Fannar sem er öðruvísi týpa en Grétar, Kidda Hafliða, Makan maður veit ekkert um hann og Jakob Spangsberg kom frá Leikni, hvernig verður hann í efstu deild?

Valsliðið kom á óvart í fyrra með þetta góða tímabil. Styrkleikarnir eru þeir að það er reynsla í þessu liði. Kjartan og Gummi Ben búnir að spila lengi, Atli með mikla reynslu eftir að hafa verið hjá KA og úti að spila, Sigurbjörn Hreiðarsson er líka mjög reynslumikill. Þetta held ég að get verið þeirra styrkur og að þeir vilja gera ennþá betur enn í fyrra.

Styrkleikar:
Ef Gummi Ben nær að spila annað tímabil eins og í fyrra þá er það styrkleiki að spila agaðan skipulagðan fótbolta og hafa svo mann eins og hann í frábærar sendingar til að leggja upp mörk. Svo eru menn eins og Matthías, Garðar, Jakob Spangsberg. Svo vil ég sjá Pálma Rafn, hann á að geta verið mjög öflugur fyrir þá.

Veikleikar 
Þeir hafa misst Grétar og Bjarna Ólaf og Sigþór. Það eru höggvin ákveðin skörð í liðið. Það er mjög erfitt að sjá veikleika á liðinu því þeir fá inn í staðinn menn eins og Val Fannar og Pálma Rafn. Ég sé enga veikleika á liðinu sem slíka. Þeir spila mjög svipað og á undirbúningstímabilinu í fyrra. Willum notar ekki mjög marga leikmenn svo það er spurning hvernig breiddin er ef það bregst.

Gaman að fylgjast með
Það er alltaf gaman að fylgjast með Guðmundi Benediktssyni og svo er leikmaður sem sprakk út í fyrra, Baldur Aðalsteinsson. Hann er að mínu mati öflugasti vængmiðjumaðurinn í deildinni. Mikill kraftur í honum, góður, fljótur og ógnar bæði með skotum og gegnumbrotum.

Lykilmaður
Atli, Gummi Ben, Baldur, Sigurbjörn og Kjartan eru lykilmenn í þessu liði og verða að fylgja góðu tímabili í fyrra eftir.



Þjálfarinn:
Willum Þór Þórsson þjálfar Val annað árið í röð.  Hann náði frábærum árangri með liðið á síðustu leiktíð en undir hans stjórn varð liðið í öðru sæti í deild og vann VISA bikarinn.  Auk þess náði hann þeim magnaða árangri að enginn leikmanna hans meiddist yfir tímabilið. Áður en Willum kom til Vals var hann hjá KR þar sem hann skilaði tveimur Íslandsmeistaratitlum.

Hann er eini íslenski þjálfarinn sem hefur stjórnað liði til sigurs í öllum deildum á Íslandi. Hann kom til KR fyrir tímabilið 2002 eftir að hafa stýrt Haukum upp í 1. deildina og á sínu fyrsta ári hjá KR stjórnaði hann sínu liði til sigurs í deildinni og endurtók leikinn svo í hittifyrra er liðið varð Íslandsmeistari. Willum hafði áður unnið 1. deild með Þrótti 1997, 3 deild með Haukum 2000 og 2. deild með Haukum 2001.


Líklegt byrjunarlið Vals:

 

Völlurinn:
Valsmenn þurfa að spila alla heimaleiki sína á Laugardalsvelli á þessari leiktíð.   Miklar framkvæmdir eru í gangi á vellinum eins og stendur og því munu áhorfendur aðeins geta verið í nýju stúkunni.   Samtals tekur hún um 3500 í sæti auk þess sem hægt er að selja í stæði.

 
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna Vals eru: Guðni Bergsson fyrrum fótboltamaður, Hemmi Gunn, Halldór "Henson" Einarsson, Séra Pálmi Matthíasson, Stefán Hilmarsson poppari, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur.

Spáin

nr. Lið Stig
1 FH 97
2 ÍA 83
3 KR 74
4 Valur 73
5 Keflavík 65
6 Fylkir 46
7 Víkingur 33
8 ÍBV 30
9 Grindavík 25
10 Breiðablik 24

Um félagið

Valur
Stofnað 1911

Titlar:
Íslandsmeistarar (19): 1930, 1933, 1935, 1936,1937, 1938, 1940, 1943, 1944, 1945, 1956, 1966, 1967, 1976, 1978, 1980, 1985, 1987.

Bikarmeistarar (8):
1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992.

Búningar:
Puma

Aðalbúningur:
Peysa: Rauð / Buxur: Hvítar / Sokkar: Hvítir

Varabúningur:
Peysa: Blá / Buxur: Hvítar / Sokkar: Rauðir (eða bláir)

Opinber vefsíða:
Valur.is


Komnir og farnir

Nýjir frá síðasta sumri:
Pálmi Rafn Pálmason frá KA
Valur Fannar Gíslaon frá Fylki
Jakob Spansberg frá Leikni
Andri Valur Ívarsson frá Völsungi
Örn Kató Hauksson frá KA
Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson úr Fram
Sigurður Bjarni Sigurðsson frá Reyni Sandgerði
Kristinn Hafliðason frá Þrótti
Brynjar Þór Gestsson frá ÍBV
Barry Smith frá Dundee í Skotlandi
Farnir frá síðasta sumri:
Grétar Sigfinnur Sigurðsson í Víking, til baka úr láni
Kristinn Ingi Lárusson hættur
Sigurður Sæberg Þorsteinsson hættur
Stefán Helgi Jónsson hættur
Bjarni Ólafur Eiríksson í Silkeborg
Sigþór Júlíusson í Völsung á láni
Þórhallur Hinriksson í Þrótt
Einar Óli Þorvarðarson í Aftureldingu
Rafn Markús Vilbergsson í Njarðvík,
Baldvin Jón Hallgrímsson í Þrótt
Tómas Páll Þorvaldsson í Stjörnuna
Torfi Geir Hilmarsson í Aftureldingu
Þórður Steinar Hreiðarsson í Þrótt
Jóhann Hilmar Hreiðarsson í Þrótt
Komnir til baka úr láni:
 

Leikmenn Vals

nr. Nafn Staða
1. Kjartan Sturluson Markvörður
2. Barry Smith Varnarmaður
3 Steinþór Gíslason Varnarmaður
4. Valur Fannar Gíslason Varnarmaður
5. Atli Sveinn Þórarinsson Varnarmaður
6. Birkir Már Sævarsson Varnarmaður
7. Sigurbjörn Hreiðarsson Miðjumaður
8. Pálmi Rafn Pálmason Miðjumaður
9. Garðar Gunnlaugsson Framherji
10. Hálfdán Gíslason Framherji
11. Matthías Guðmundsson Miðjumaður
12. Jakob Spangsberg Framherji
13. Baldur Þórólfsson .
14. Kristinn Hafliðason Miðjumaður
16. Baldur Aðalsteinsson Miðjumaður
17. Guðmundur Hafsteinsson .
20. Ari Freyr Skúlason Vörn/miðja
21. Þorvaldur Makan S. Miðjumaður
22. Andri Valur Ívarsson Framherji
23. Guðmundur Benediktsson Framherji
24. Sigurður B. Sigurðsson Markvörður
27. Örn Kató Hauksson Miðjumaður
29. Kristinn Geir Guðmundss Markvörður
 

Leikir Vals

Dags: Tími Leikur
15. maí 20:00 Breiðablik - Valur
21. maí 20:00 Valur - FH
25. maí 19:15 ÍBV - Valur
29. maí 19:15 Valur - ÍA
5. júní 19:15 Víkingur - Valur
8. júní 19:15 Valur - Fylkir
15. júní 19:15 Grindavík - Valur
21. júní 19:15 Valur - Keflavík
29. júní 19:15 KR - Valur
9. júlí 14:00 Valur - Breiðablik
16. júlí 19:15 FH - Valur
31. júlí 19:15 Valur - ÍBV
10. ágúst 19:15 ÍA - Valur
20. ágúst 20:00 Valur - Víkingur
28. ágúst 18:00 Fylkir - Valur
11. sept 20:00 Valur - Grindavík
17. sept 14:00 Keflavík - Valur
23. sept 14:00 Valur - KR

Slapp
banner
banner
banner